Styrkir fyrir nemendur í TVD og TD
Námssjóður Sameinaðra verktaka við Háskólann í Reykjavík úthlutar tvisvar á ári styrkjum til nemenda við tækni- og verkfræðideild og tölvunarfræðideild.
Styrkurinn er ætlaður nemendum sem sýnt hafa afbragðs námsárangur og einnig þeim sem hyggja á framhaldsnám. Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári, í maí og í janúar. Auglýst er eftir umsóknum í sjóðinn á heimasíðu HR og á auglýsingatöflum skólans. Hver styrkur er nú að upphæð kr. 150 þúsund.
Námssjóður Sameinaðra verktaka var upphaflega við Tækniháskóla Íslands og var fyrsta úthlutun í janúar árið 2000. Frá sameiningu HR og THÍ árið 2005 hefur sjóðurinn verið innan tækni- og verkfræðideildar og tölvunarfræðideildar. Alls hafa 35 nemendur hlotið styrk frá upphafi.
Í stjórn sjóðsins sitja Sturla Böðvarsson, Anna Bragadóttir og Ísleifur Árni Jakobsson.
Þeir sem geta sótt um eru:
1. Nemendur sem hafa lokið námi og hafa fengið námsvist við menntastofnun sem veitir hærri prófgráðu í grein viðkomandi
2. Nemendur í tæknifræði, verkfræði eða tölvunarfræði sem eiga eitt misseri eftir.
3. Nemendur sem lokið hafa sams konar hluta hliðstæðs náms sem kann að verða kennt við skólann.
Stefnt er að næstu úthlutun í janúar 2011
Skila skal umsóknum á sérstökum umsóknareyðublöðum sem hægt er að fá á skrifstofu skólans ásamt staðfestu ljósriti af námsferilsblaði frá skólanum.
Frekari upplýsingar veitir Anna Bragadóttir (annabraga@ru.is) og starfsmenn Stúdentaþjónustu HR.
- Umsóknareyðublað (á pdf formi)
