Nýnemastyrkur fyrir afburðanemendur - grunnnám

Nemendur sem hefja nám á haustönn 2010 geta sótt um.

Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum nýnemastyrk á fyrstu önn þeirra við skólann. Styrkurinn nemur skólagjöldum á fyrstu önn námsins. Styrkurinn er veittur nemendum sem hefja grunnnám á haustönn og vorönn.

  • Allir sem sækja um skólavist og eru með yfir 8,0 í meðaleinkunn á stúdentsprófi geta sótt um styrkinn.
  • Til að geta sótt um styrkinn þarf fyrst að sækja um skólavist í HR.
  • Aðeins þeir sem eru að fara í 3ja ára BS/BA nám geta sótt um styrkinn.
  • Val á þeim sem hljóta styrkinn mun byggjast á innihaldi stúdentsprófsins miðað við æskilegan undirbúning fyrir það nám sem sótt er um. Auk þess verður horft á persónulega yfirlýsingu í umsókn.
  • Umsækjendur um styrkinn fá svar um miðjan júní fyrir haustönn og um miðjan desember fyrir vorönn.
  • Í valnefnd styrksins eru forstöðumaður kennslusviðs, forstöðumaður stúdentaþjónustu og framkvæmdastjóri mannauðs og gæða.

Markmið með styrkveitingunni er að hvetja framúrskarandi námsmenn til metnaðarfulls náms og til að auðvelda þeim að helga sig náminu af krafti. Nýnemastyrkurinn er veittur á haustönn og vorönn.

Sækja um nýnemastyrk. Umsóknarfrestur er til 10. júní 2010.

 

Upplýsingar um styrkinn veita starfsmenn stúdentaþjónustunnar, Gréta MatthíasdóttirLóa Hrönn Harðadóttir og Sigríður Hulda Jónsdóttir.


 

 

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica