Nýnemastyrkir í meistaranámi

Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum sem hefja meistaranám styrk á fyrstu önn þeirra við skólann. Meistaranámsstyrkurinn nemur skólagjöldum á fyrstu önn námsins. Styrkurinn er veittur nemendum sem hefja meistaranám á haustönn og vorönn.

  • Til að geta sótt um styrkinn þarf fyrst að sækja um skólavist í HR.
  • Val á þeim sem hljóta styrkinn mun byggjast á einkunn og innihaldi háskólaprófs miðað við æskilegan undirbúning fyrir það nám sem sótt er um. Auk þess verður tekið mið af starfsreynslu, verkefnum sem styrkumsækjandi hefur komið að og persónulegri yfirlýsingu í umsókn.
  • Styrkurinn á við um allt nám á meistarastigi í HR sem er að lágmarki 90 ECTS einingar nema MBA og MPH Ex.
  • Umsækjendur um styrkinn fá svar um miðjan júní fyrir haustönn og um miðjan desember fyrir vorönn.
  • Í valnefnd styrksins eru forstöðumaður kennslusviðs, forstöðumaður stúdentaþjónustu og framkvæmdastjóri mannauðs og gæða.

Markmið með styrkveitingunni er að hvetja framúrskarandi námsmenn til metnaðarfulls náms og til að auðvelda þeim að helga sig náminu af krafti. Smelltu hér til að sækja um. Umsóknarfrestur er til 10. júní 2010.

 

Upplýsingar um styrkinn veita starfsmenn stúdentaþjónustunnar, Gréta MatthíasdóttirLóa Hrönn Harðadóttir og Sigríður Hulda Jónsdóttir.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica