Styrkþegar 2007
Þann 3. maí sl. var stofnaður styrktarsjóður dr. Guðfinnu S. Bjarnadóttur, fyrrverandi rektors Háskólans í Reykjavík. Að stofnun þessa sjóðs standa Bakkavör Group, Háskólinn í Reykjavík og Viðskiptaráð Íslands og er honum ætlað að verðlauna þá nemendur Háskólans í Reykjavík sem leggja fram bestu viðskiptaáætlun í verkefnum innan skólans á ári hverju. Sjóðurinn ber nafn dr. Guðfinnu S. Bjarnadóttur, fyrrverandi rektors Háskólans í Reykjavík, vegna framlags hennar til frumkvöðlamenntunar innan HR.
Frumkvöðlaverðlaunin voru veitt í fyrsta sinn við hátíðlega athöfn við skólasetningu Háskólans í Reykjavík í dag. Verkefnið sem hlaut verðlaunin fyrir bestu viðskiptaáætlunina nefnist Brísingur ehf. Viðskiptahugmyndin er að framleiða og markaðssetja smádúkkur í líki norrænu goðanna og kvikinda úr þeim sögum. Nemendurnir sem eiga heiðurinn af þessari viðskiptaáætlun eru þau Andri Þór Tómasson, Elfa Antonsdóttir, Guðni P. Sigurjónsson, Ómar B. Torfason, Rósa Björgvinsdóttir, Rúrik F. Jónsson og Svanbjörg H. Björnsdóttir. Í dómnefnd voru: Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Hildur Árnadóttir, framkvæmdastjóri Bakkavarar og Svafa Grönfeldt, rektor HR.
Guðfinna S. Bjarnadóttir kom með nýja sýn inn í íslenskt háskólaumhverfi þegar hún tók við starfi rektors Háskólans í Reykjavík árið 1998. Það er trú stjórnenda Háskólans í Reykjavík að mannauðurinn sé mesta auðlind landsins, þannig hefur hugsunin verið frá fyrstu tíð. Til stuðnings frumkvæði og sköpunarkraftinum sem býr í hverjum einstakling þá hefur nýsköpun verið eitt af aðalsmerkjum skólans.
Guðfinna er frumkvöðull sem stofnað hefur og rekið eigið fyrirtæki í Bandaríkjunum, hún hafði sérhæft sig í stjórnun og unnið sem ráðgjafi víða um heim áður en hún kom aftur til Íslands árið 1998 til að taka við uppbyggingastarfi HR. Bakkavör og Háskólinn í Reykjavík vilja heiðra Guðfinnu S. Bjarnadóttur með því að kenna frumkvöðlasjóðinn við hana. Frumkvæði og kraftur hafa einkennt störf hennar í þágu HR. Vonast er til þess að styrkurinn hvetji nemendur til frumkvæðis og til þess að stofna fyrirtæki og skapa störf í þágu íslensks samfélags og atvinnulífs.
