Forsetalisti HR
Styrkir fyrir afburðanemendur sem þegar eru í námi í HR
Þeir nemendur sem bestum árangri ná á hverju próftímabili eiga kost á að komast á forsetalista og fá skólagjöld næstu annar skv. námsskipulagi niðurfelld.
Til þess að vera gjaldgengir á forsetalista þurfa nemendur í dagskóla að ljúka að minnsta kosti 30 ECTS einingum á önn. Eingöngu námskeið sem nemendur ljúka á hefðbundnu próftímabili, eða fyrir þann tíma, eru gjaldgeng á forsetalista. Í útreikningi á meðaleinkunn gilda eingöngu próf sem tekin eru í fyrsta sinn í tilteknu námskeiði, m.ö.o. endurtektarpróf gilda ekki en sjúkrapróf gilda.
Upplýsingar um styrkinn veita deildarfulltrúar og starfsmenn stúdentaþjónustu, Gréta Matthíasdóttir, Lóa Hrönn Harðadóttir og Sigríður Hulda Jónsdóttir
- Frá forsetalistaathöfninni í febrúar 2010
- Frá forsetalistaathöfninni í september 2009
- Frá forsetalistaathöfninni í janúar 2009
- Frá forsetalistaathöfninni í september 2008
- Frá forsetalistaathöfninni í febrúar 2008
