Styrkir fyrir nemendur
Nýnemastyrkir í grunnnámi
Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum nýnemastyrki á fyrstu önn þeirra við skólann. Styrkurinn nemur skólagjöldum á fyrstu önn námsins. Allir nýnemar sem sækja um skólavist og eru með yfir 8,0 í meðaleinkunn á stúdentsprófi geta sótt um styrkinn.
Forsetalisti HR
Þeir nemendur sem bestum árangri ná á hverju próftímabili eiga kost á að komast á forsetalista og fá skólagjöld næstu annar niðurfelld.
Frumkvöðlasjóður Guðfinnu S. Bjarnadóttur
Frumkvöðlasjóður dr. Guðfinnu Bjarnadóttur fyrrverandi rektors var stofnaður 3. maí 2007. Að stofnun þessa sjóðs standa Bakkavör Group, Viðskiptaráð Íslands og Háskólinn í Reykjavík og er honum ætlað að verðlauna þá nemendur Háskólans í Reykjavík sem leggja fram bestu viðskiptaáætlun í verkefnum innan skólans á ári hverju.
Nýnemastyrkir í meistaranámi
Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum sem hefja meistaranám styrk á fyrstu önn þeirra við skólann. Meistaranámsstyrkurinn nemur skólagjöldum á fyrstu önn námsins. Styrkurinn er veittur nemendum sem hefja meistaranám á haustönn og vorönn.
Styrkir fyrir meistaranema í tækni- og verkfræðideild
Tækni- og verkfræðideild býður upp á margvíslega styrki fyrir meistaranema til að mæta kostnaði við skólagjöld. Bæði er um að ræða styrki sem þar sem skólagjöd eru felld niður á grundvelli árarangurs (Forsetastyrkir) og aðstoðarkennarastyrki.
Styrkir fyrir nemendur í tækni- og verkfræðideild og tölvunarfræðideild
Nemendur í tækni- og verkfræðideild og tölvunarfræðideild geta sótt um styrk í námssjóð Sameinaðra verktaka við Háskólann í Reykjavík.
