Námskeið Stúdentaþjónustu á vorönn 2010. Námskeið og kynningar eru nemendum að kostnaðarlausu nema annað sé tekið fram.
Skráning fer fram í myscool nema annað sé tekið fram. takið fram nafn, deild, netfang og nafn námskeiðs við skráningu.
Hraðlestrarnámskeið þrjú skipti (3 klst. hvert skipti)
HR-hraðnámskeið, Hraðlestrarskólinn verður með þriggja vikna hraðlestrarnámskeið fyrir nemendur og starfsmenn HR. Kennslan fer fram í Háskólanum í Reykjavík. Haldin verða tvö námskeið í byrjun vorannar 2009. HR-ingar greiða kr. 21.500 fyrir námskeiðið en venjulegt námsmannaverð er kr. 28.500 og almennt verð er kr. 34.500. HR-ingum er heimilt að taka með sér gesti á námskeiðið sem greiða þá sama gjald eða kr. 21.500.
Frekari upplýsingar og skráning á námskeiðin er á http://www.hradlestrarskolinn.is/hr
eða í síma 586 9400.
- Tími 1: lestrarhraði í prófi – 171 orð á mínútu / lestrarskilningur í prófi – 66%
- Tími 3: lestrarhraði í prófi – 476 orð á mínútu / lestrarskilningur í prófi – 81%
- Aukning á hraða – Rétt tæp þreföldun á lestrarhraða / aukning á lestrarskilningi – 23%
Umsagnir nemenda í HR af nýliðnum námskeiðum:
Opnaði nýjar víddir fyrir mér. Nú verður próflestur leikur einn í stað þess að vera kvöð áður fyrr. Arinbjörn Marínósson, 27 ára nemi.
Hefði aldrei geta trúað því hvað þetta er sniðug aðferð til að lesa. Kom líka á óvart hve
mikið auka efni s.s. glósutækni, minnisaðferðir, upprifjunartækni var á námskeiðinu.
Þetta var eins og extra bónus sem nýtist mér rosalega vel. Takk.
Elín G. Hólmarsdóttir, 28 ára nemi
Atvinnuþjónusta HR. Vinnusmiðja fyrir útskriftarnemendur. Þeir nemendur sem útskrifast nú í janúar og í júní eru hvattir til að láta þessa vinnusmiðju ekki fram hjá sér fara. Farið verður yfir hvað þarf að hafa í huga við gerð góðra ferilskráa og hvað getur skipt máli í atvinnuleitinni.Von er á góðum gestum sem fara yfir ýmislegt sem gott er að hafa í farteskinu við útskrift.
Tímasetning: 20. janúar kl. 14 - 16 í stofu M-108 í Nauthólsvík - LOKIÐ
Námstækninámskeið (2 klst. og 15 mín.) Námstækninámskeið fyrir allar deildir skólans. Námskeiðin eru fyrir nýja nemendur en eldri nemendum er velkomið að mæta. Farið er yfir ýmsa þætti námstækni, svo sem tímastjórnun, markmiðasetningu, lestrartækni, glósutækni og próftækni.
Tímasetning: Námskeiðið er þrjú skipti, 26. jan, 2. feb. og 9. feb frá kl. 14-15:30 í stofu M.1.21. í Nauthólsvík - LOKIÐ
Tímasetning 2: Námskeiðið er þrjú skipti 29. jan, 5. feb. og 12. feb frá kl. 14:10 - 15:40 í stofu 304 í Ofanleiti - LOKIÐ
Mjög gott og hvetjandi námskeið sem mér finnst alveg nauðsynlegt til að ná
betri tökum á krefjandi námi.
Umsögn nemanda í HR
Lestrar- og glósutækni (50 mín.) Farið er yfir grunnþætti í lestrar- og glóstutækni, svo sem hvernig er árangursríkt að glósa á blað og/eða á tölvu.
Tímasetning:1. febrúar íkl. 14:30 - 15:30 í stofu 404 Ofanleiti og 5. febrúar kl. 12- 13 í stofu M1.23 í Nauthólsvík - LOKIÐ
Alveg ómissandi námskeið. Mjög góðar aðferðir sem farið var í og munu
örugglega hjálpa mér í náminu.
Umsögn nemanda í HR
Atvinnuþjónusta HR - Hvert stefni ég í framtíðinni? Hver er leiðin að starfsframa og starfshamingju? Góðir gestir koma og segja frá starfsferli sínum.
Tímasetning: 3. febrúar kl 14:10 - 16 í stofu M1.08 í Nauthólsvík - LOKIÐ
Tímastjórnun og markmiðssetning (60 mín.). Farið er yfir hvernig gott er að skipuleggja tíma sinn og setja sér markmið til að ná betri árangri í náminu. Til að geta skipulagt tímann er mikilvægt að hafa yfirsýn yfir hvernig honum er varið. Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem ná góðum árangri hafa haft það að markmiði í einhvern tíma. Í framhaldinu stendur nemendum til boða eftirfylgni.
Tímasetning: Þriðjudagur 16. feb. kl. 15:30 Staðsetning: Pollux, stofa M.2.15 (hjá Stúdentaþjónustu)
Mjög hvetjandi og gott námskeið sem hefur hjálpað mér mikið. Mér finnst
að allir ættu að fara á svona námskeið. Takk fyrir mig.
Umsögn nemanda í HR
Náðu árangri undir álagi (50 mín.) Til að ná hámarksárangri er mikilvægt að geta einbeitt sér og unnið skipulega undir álagi. Í upphafi háskólanáms koma upp nýjar aðstæður sem mikilvægt er að ná góðum tökum á. Farið er í ýmis atriði sem gott er að hafa í huga þegar unnið er undir álagi.
Tímasetning: 11. febrúar kl 11:15 - 12:05 í stofu M1.16 í Nauthólsvík - féll niður - auglýst síðar.
Mjög gott námskeið í alla staði. Hjálpaði manni að vera jákvæður og gefur manni von um að komast í gegnum ákveðna hluti. Mæli svo sannarlega með því að fara á svona námskeið.
Umsögn nemanda í HR
Atvinnuþjónusta HR - Hvert leiðir framhaldsnámið þig? Framhaldsnám hérlendis sem erlendis. Góðir gestir koma og segja frá reynslu sinni. Starfsmaður Upplýsingastofu um nám erlendis kemur og gefur góð ráð.
Tímasetning: 11. febrúar kl. 14:10 - 16:00 í stofu M1.08 í Nauthólsvík.
Strong fyrirlögn (60 mín.) Áhugakönnun Strong lögð fyrir. Niðurstöðurnar segja þér í hvaða átt áhugi þinn beinir þér hvað varðar val á námi, starfi og tómstundum. Ennfremur sérð þú hvernig áhugasvið þitt fellur að áhugasviði fólks í hinum ýmsu starfsgreinum. Þú getur lesið nánar um könnunina hér. Áhugakönnun Strong kostar kr. 9000 fyrir nemendur HR og kr. 12.000 fyrir aðra.
Tímasetning: 15. febrúar kl. 14 - 15 í stofu V1.05 í Nauthólsvík.
Kvíðastjórnun - Náðu tökum á prófkvíðanum!
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur nái tökum á prófkvíðanum og læri leiðir til að stjórna honum. Þeir sem hafa áhuga er boðíð að svara spurningalista sem metur prófkvíða, vinsamlega látið vita við skráningu ef þið hafið áhuga á því. Fjöldi á námskeiðinu verður takmarkaður og boðið verður upp á eftirfylgni.
Námskeiðið er í þrjú skipti, á eftirfarandi tímum:
NAUTHÓLSVÍK: Fim, 25. feb., 4. og 11. mars, kl. 14:10 - 15:40 - hefst 25. febrúar. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á loa@ru.is þar sem tilgreina þarf nafn, deild, netfang og síma. Umsjón með námskeiðinu hefur Lóa Hrönn Harðardóttir, náms- og starfsráðgjafi. Staðsetning: Pollux 2 M.2.15 (hjá Stúdentaþjónustu).
OFANLEITI: Fös., 26. feb., 5. og 12. mars, kl. 14:10 - 15:40 - hefst 26. febrúar. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á namsradgjof@ru.is þar sem tilgreina þarf nafn, deild, netfang og síma. Umsjón með námskeiðinu hefur Lóa Hrönn Harðardóttir, náms- og starfsráðgjafi auk Helgu Jónu Pálmadóttur, nema í náms- og starfsráðgjöf. Staðsetning: 5. hæð Ofanleiti, nánar auglýst síðar.
Atvinnuþjónusta HR - Undirbúningur fyrir atvinnuleit. Lærðu að gera ferilskrá og kynntu þér öll trixin í bókinni.
Tímasetning: 18. febrúar kl. 12 - 13 í stofu 101 í Ofanleiti.
Slökun og ,,mindfulness“ (20 mín) Áttu erfitt með að slaka á? Ertu oft að hugsa um margt í einu? Ef þú vilt auka hæfni þína í að festa hugann við það sem þú ert að gera í hvert og eitt skipti er ,,mindfulness” eitthvað fyrir þig! Mindfulness eða vakandi nærvera er leið til að dvelja í núinu í vinsemd og sátt við sjálfan sig, finna og njóta. Mindfulness er hægt að þjálfa með meðvitaðri slökun þar sem við stöldrum við og skoðum hugsanir okkar, skynjun og líðan. Við forðumst að meta, greina, flokka og dæma. Við samþykkjum okkur sjálf. Mindfulness hefur reynst gefa ótrúlega góðan árangur til sjálfsþekkingar og vellíðunar. Rannsóknir sýna einnig að mindfulness getur aukið lífsgæði og lífshamingju, veitt betri heilsu og jafnvel lengra líf.
Tímasetning: 23. febrúar kl. 12:10-12:30 í stofu M1.08 í Nauthólsvík.
Gott að ná sér niður úr amstri dagsins. Góð tímasetning og gott að hafa þetta ekki
lengra en 20 mínútur. Frábær leiðsögn.
Umsögn nemanda í HR
Atvinnuþjónusta HR - Atvinnuviðtalið. Hvernig er hægt að undirbúa sig fyrir atvinnuviðtöl, hvað þarf að hafa í huga í viðtalinu.
Tímasetning: 24. febrúar kl. 12 - 13 í stofu M1.24 í Nauthólsvík.
Atvinnuþjónusta HR - Atvinnutækifæri lögfræðinga. Fjórir lögfræðingar koma og segja frá störfum sínum og starfsferli. Veitt verður innsýn í ólíkar starfsgreinar lögfræðinnar; lögmennsku, stjórnun og stjórnsýsluna.
Tímasetning: 4. mars kl. 15 - 17 í Ofanleiti.
Nýttu það sem í þér býr (50 mín.) Hvert stefnir þú og hvaða leiðir eru færar þangað? Hvar viltu vera eftir 5 eða 10 ár og hvað þarftu að gera til að vinna þig þangað? Þú stjórnar eigin lífi, beindu því í þann farveg sem þú óskar. Á námskeiðinu verður rætt um persónuleg langtíma- og skammtímamarkmið. Nemendur setja fram sín eigin markmið og leiðir að þeim.
Tímasetning: 10. mars kl. 11:15 - 12:05 í stofu M1.07 í Nauthólsvík
Hvað er hamingja? (50 mín.) Getur jákvæð hugsun skapað tækifæri? Hvað er hamingja og hvernig getum við orðið hamingjusamari? Hikið ekki við að eiga uppbyggilega stund í hádeginu, efla ykkur og verða um leið sterkari einstaklingar og námsmenn
Tímasetning: 11. mars kl. 12:10 - 13 í stofu M1.07 í Nauthólsvík.
Mjög gott og gefandi námskeið. Gott að gefa nemum tækifæri til
að efla hamingju í skólanum og lífinu. Endilega fleiri svona námskeið.
Umsögn nemanda í HR
Hvernig á að undirbúa vinningsumsókn fyrir framhaldsnám erlendis
Marie-Teresa Vander Sande, fyrrverandi stjórnandi í atvinnulífstengslum hjá MIT og eiginkona aðstoðarrektors HR mun halda kynningu fyrir þá nemendur sem ætla að sækja um framhaldsnám erlendis og þá sérstaklega með tilliti til bandarískra skóla. Kynningin fer fram á ensku og nánari lýsingu er að finna hér:
How to Prepare a Winning Graduate School Application
It's tougher than ever to get into graduate school in the US. Many universities, including Yale, Harvard, Northwestern and MIT, have announced they will shrink graduate enrollments because of forced budget cuts and reduced endowment earnings which have largely financed graduate education to date. At the same time, applications to US grad schools are rising. Competition is fierce and US universities will be even more selective in admitting graduate students.
What can you do?
Start early. Gather as much information as you can about possible grad programs. Ask your professors for advice. Prepare an application timeline and stick to it. Make checklists of requirements for international students and deadlines for each grad program you're applying to. Prepare for standardized tests and take them as soon as possible. Cultivate relationships with prospective recommendation writers. Write your essays and get help in reviewing them. Take their advice and rewrite your essays. Check and re-check that you are fulfilling all requirements. Do everything early.
Come hear Marie Vander Sande and recent RU students who have applied to US graduate school programs give advice about preparing a winning graduate school application.
Marie has a BSc in Materials Science and Engineering from Cornell University and an MSc in Materials Science and Engineering from Northwestern University. She is former Manager of Corporate Relations at the MIT Industrial Liaison Program and is the wife of RU's Provost, John B. Vander Sande.
Tímasetning: 17. mars kl. 15:30 - 17:00 í stofu M2.09 í Nauthólsvík.
Atvinnuþjónusta HR - Atvinnutækifæri fyrir verk- og viðskiptafræðinga. Er starf þarna úti fyrir mig. Góðir gestir koma í heimsókn.
Tímasetning: 17. mars kl. 14:10 - 16 í stofu M1.08 í Nauthólsvík.
Próftækninámskeið (45 mín.) Farið er yfir lykilatriði í próftækni bæði varðandi undirbúning fyrir próf og atriði sem gott er að hafa í huga í prófum.
Tímasetning: 23. mars kl. 14:00 - 14:45 í stofu M2.09 í Nauthólsvík.
26. mars kl. 14:00 - 14:45 í stofu 403 í Ofanleiti.
Mjög gott námskeið sem undirbýr mann vel undir prófin. Mörg góð
ráð sem gott er að hafa í huga.
Umsögn nemanda í HR
Strong fyrirlögn (60 mín.) Áhugakönnun Strong lögð fyrir. Niðurstöðurnar segja þér í hvaða átt áhugi þinn beinir þér hvað varðar val á námi, starfi og tómstundum. Ennfremur sérð þú hvernig áhugasvið þitt fellur að áhugasviði fólks í hinum ýmsu starfsgreinum. Þú getur lesið nánar um könnunina hér. Áhugakönnun Strong kostar kr. 9000 fyrir nemendur HR og kr. 12.000 fyrir aðra.
Tímasetning: Auglýst síðar
Árangursrík samskipti – samvinna í hópastarfi
Samskiptahæfni skiptir sífellt meira máli í atvinnulífinu og samfélaginu öllu. Í könnun sem HR gerði meðal atvinnurekenda nú í febrúar um nauðsynlega færni starfsfólks, kom í ljós að atvinnurekendur töldu mikilvægast að starfsfólk þeirra væri fært í mannlegum samskiptum.
Á námskeiðinu er farið yfir mikilvæg atriði í árangursríkum samskiptum, eins og hvernig leysa má ágreining og ná sameiginlegu markmiði þrátt fyrir ólík sjónarmið. Lögð er áhersla á þætti sem nýtast nemendum vel í hópa- og verkefnavinnu. Þátttakendur taka próf Belbins um hóphlutverk og fá niðurstöðu um hvaða hlutverkum þeir gegna best i hópvinnu.
Tímasetning: Auglýst síðar
Frábært námskeið sem vekur mann til umhugsunar. Mjög góður grunnur
til þess að geta betur tekist á við hópvinnu.
Umsögn nemanda í HR
Áhrifaríkar kynningar á verkefnum (50 mín.)
Farið er yfir hvernig hægt er að kynna verkefni á árangursríkan hátt, lykilatriði í framsögn og fleira. Flutningur á verkefnum hefur mikil áhrif á hvort kynningin nær í gegn hjá áheyrendum og skilar því sem til stóð. Faglegur og kraftmikill flutningur skilar þér betri árangri. Að tala af sannfæringu og jákvæðni skiptir máli þegar verkefni eru kynnt, þetta er hægt að læra.
Umsjón: Heimir Haraldsson náms- og starfsráðgjafi HR.
Tímasetning: Auglýst síðar
Alveg ótrúlega gott námskeið, í rauninni alveg nauðsynlegt til að verða
enn hæfari til að kynna verkefnin sín. Mæli með þessu.
Umsögn nemanda í HR
Strong fyrirlögn (60 mín.) Áhugakönnun Strong lögð fyrir. Niðurstöðurnar segja þér í hvaða átt áhugi þinn beinir þér hvað varðar val á námi, starfi og tómstundum. Ennfremur sérð þú hvernig áhugasvið þitt fellur að áhugasviði fólks í hinum ýmsu starfsgreinum. Þú getur lesið nánar um könnunina hér. Áhugakönnun Strong kostar kr. 9000 fyrir nemendur HR og kr. 12.000 fyrir aðra.
Tímasetning: Auglýst síðar
