Hvar skal byrja?
- Mikilvægt er að hefja undirbúning fyrr en seinna, u.þ.b. 1-1 ½ ári áður en nám hefst en það er þó mismunandi eftir landi og skóla.
- Ákveða hvaða námsleið stefnt er að og í framhaldi af því velja námsland og hvaða skólar vekja áhuga. Upplýsingar um skóla eftir löndum má finna á heimasíðu Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins http://www.ask.hi.is/.
- Kynna sér hvenær umsóknarfrestur rennur út hjá viðkomandi skóla.
- Hvaða gögn þarf að senda með umsókninni?
- Kynna sér hvort nemendur þurfa að þreyta inngöngupróf í viðkomandi skóla.
- Þurfa umsækjendur að þreyta tungumálapróf eða önnur próf sem hluta af umsóknarferlinu?
- Bandarískir háskólar gera kröfu um að nemendur þreyti slík próf áður en veitt er innganga í skólana.
- TOEFL er enskupróf sem flestir umsækjendur þurfa að taka.
- SAT er próf fyrir þá sem eru að hefja háskólanám (ekki algilt).
- GMAT þurfa flestir nemendur að taka sem eru á leið í framhaldsnám í viðskiptagreinum.
- GRE er ætlað þeim sem fara í framhaldsnám í öðrum greinum.
- Franskir háskólar gera kröfu um að umsækjendur þreyti tungumálapróf sem hluta af umsóknarferlinu.
Hægt er að taka DELF og DALF prófin hjá Alliance francais.
Athugið að þessi listi er ekki tæmandi.
- Kanna hvort námið sé lánshæft http://www.lin.is/
- Athuga hvort námið sé tekið gilt hér á landi.
- Styrkir til náms erlendis. Upplýsingar um styrki má finna á http://www.sine.is/ og http://www.ask.hi.is
- Húsnæði. Gott er að byrja huga að búsetu þegar staðfesting skólavistar liggur fyrir. Þó er ekkert því til fyrirstöðu að húsnæðisleit hefjist um leið og sótt er um skólavist. Stúdentagarðar eru starfræktir í sumum löndum er einnig er hægt að senda auglýsingu á leigumarkaði sem finna má á heimasíðu http://www.sine.is/ . Á heimasíður Alþjóðskrifstofu háskólastigs má finna upplýsingar um heimasíðu stúdentagarða á Norðurlöndum og víðar.
- Tryggingar:
Nemendur á Norðurlöndum þurfa að flytja lögheimili sitt til þess að komast inn í heilbrigðistryggingkerfi viðkomandi lands. Aðrar reglur eru í gildi fyrir ESB-ríkin og Bandaríkin en frekari upplýsingar má nálgast hjá Tryggingastofnun ríkisins eða inn á heimasíðu þeirra http://www.tr.is/.
- Vegabréfsáritanir og vottorð: Inn á vef Sambands íslenskra námsmanna erlendis má finna upplýsingar um vottorð sem hafa þarf meðferðis ásamt upplýsingum um vegabréfsáritanir.
- Námslán: Allar upplýsingar varðandi námslán má finna hjá Lánsjóði íslenskra námsmanna eða á heimasíðu þeirra http://www.lin.is/
- Búslóðaflutningar: Hafa má samband við Samskip varðandi flutninga búslóðar. http://www.samskip.is/.
- Önnur málefni varðandi flutning vegna náms erlendis:
- Allar upplýsingar um skattamál námsmanna erlendis má finna inn á http://www.sine.is/ eða http://www.rsk.is/.
- Upplýsingar um lánshæfi náms er að finna inn á http://www.lin.is/
- Upplýsingar um tryggingar námsmanna erlendis má finna inn á http://www.tr.is/
