Útlán
Safnkostur BUHR er lánaður út af safninu. Að undanskildu eftirtöldu:
- Bækur í Námsbókasafni (kennslubækur og ítarefni)
- Handbækur
- Tímaritshefti og innbundin tímarit
- Dómasöfn
- Stjórnartíðindi og Alþingistíðindi
Helstu lánþegar eru kennarar, starfsfólk og nemendur Háskólans í Reykjavík. Þessir lánþegar geta fengið gögn að láni án endurgjalds með því að skrá sig í afgreiðslu BUHR í Nauthólsvík eða Ofanleiti.
- Önnur háskóla- og rannsóknarbókasöfn geta haft milligöngu um lán úr safnkosti BUHR fyrir nemendur og starfsfólk viðkomandi háskóla/stofnana
- Aðrir en ofantaldir geta ekki fengið lánað úr safnkosti BUHR, en öllum er heimilt að heimsækja söfnin á auglýstum afgreiðslutíma og kynna sér safnkostinn
- Almennur útlánstími bóka er 3 vikur
- Tilkynningar um vanskil á gögnum safnsins eru eingöngu sendar til lánþega í tölvupósti
- Lánþegar eru beðnir að sinna tilkynningum um vanskil á gögnum safnsins. Annað hvort með því að skila viðkomandi gagni, eða hafa samband við afgreiðslu og fá láni framlengt
- Pantanir vegna frátekinna bóka þarf að sækja innan 7 daga frá því að lánþega berst tilkynning í tölvupósti
- Lánþegar bera ábyrgð á gögnum sem þeir hafa tekið að láni og er óheimilt að lána þau öðrum. Skemmist eða glatist gagn er lánþegi, þ.e. sá sem skráður er fyrir láninu, ábyrgur og getur þurft að greiða fyrir nýtt eintak. Reynt er að meta kostnað við kaup á nýju riti, en lágmarksgjald er kr. 5.000
- Miðað er við að hver lánþegi hafi ekki fleiri en 4 bækur í lání í einu
- Miðað er við að hvert háskólabókasafn hafi ekki fleiri en 15 bækur í láni í einu
