Rafrænar greinar á kennsluvef námskeiða
Hér eru leiðbeiningar fyrir þá sem vilja tileinka sér upplýsingatæknina í kennslu og bjóða nemendum að sækja efni á rafrænu formi beint á vef námskeiðs á kennsluvefnum í MySchool. Ólíkar reglur og aðferðir gilda um íslenskt efni annars vegar og erlent efni hins vegar.
Íslenskt efni
Þegar vísað er í íslenskt efni skal það gert skv. samningi Háskólans í Reykjavík við Fjölís. Þá eru bókakaflar og greinar skannaðir, vistaðir sem skjöl (PDF) og það afrit sett inn á kennsluvefi einstakra námskeiða. Þegar námskeiðinu lýkur, lýkur notkunartíma þess afrits. Leiðbeiningar er að finna undir tenglinum Íslenskt efni.
Erlent efni
Þegar vísað er í erlent efni má ekki setja afritið sjálft inn á námskeiðsvefinn. Setja skal tengil í efnið í því heimildasafni sem efnið er að finna. Leiðbeiningar er að finna undir tenglinum Erlendar greinar.
