Rafræn gagnasöfn og höfundaréttur - ©

Allir sem nota heimildasöfnin sem BUHR kaupir aðgang að, verða að virða höfundarétt á þeim verkum sem þar eru aðgengileg, en um hann fer samkvæmt lögum og gerðum samningum milli BUHR og seljenda/eigenda.

Almennt má segja að þeir samningar feli í sér að rafræn tímarit og aðrar heimildir sem tilgreindar eru á vef BUHR séu eingöngu til afnota fyrir stúdenta, kennara, sérfræðinga og aðra starfsmenn HR í þeim tilgangi að stunda nám, kennslu, rannsóknir og annað sem telst til einkanota. Það er með öllu óheimilt að nota upplýsingarnar í hagnaðarskyni og kerfisbundið niðurhal (download), afritun og dreifing á þeim er stranglega bönnuð.

Þegar kennarar vilja vísa beint í einstakar greinar í gagnasöfnum í áskrift BUHR á kennsluvef námskeiðs skal setja krækju í greinina þar sem hún er geymd hjá útgefanda eða umboðsaðila, þannig að notandi sæki hana þangað. Það er ekki leyfilegt að setja afrit af greinum í gagnasöfnum í áskrift BUHR á vef og veita öðrum þar aðgang að texta þeirra. Frekari leiðbeiningar er að finna á síðunni: Rafrænar greinar á kennsluvef.

Eftirtaldir vefir innihalda almennan fróðleik um höfundarétt


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica