Vefsíður sem heimildir, atriði til umhugsunar

Traustur ábyrgðaraðili

  • Hver er höfundur efnis? Er hægt að hafa samband við hann - er t.d. gefið upp tölvupóstfang?
  • Hefur höfundur sérþekkingu á því sviði sem fjallað er um?
  • Athugið að gera mun á ritstjóra vefsíðu og höfundi efnis.
  • Hver gefur síðuna út? Einstaklingur, háskóli, fagfélag ...?

Óhlutdræg umfjöllun

  • Hver er tilgangur vefsíðunnar? 
  • Hve nákvæmar eru upplýsingarnar sem koma fram?
  • Er umfjöllunin einhliða eða er fjallað um efnið frá fleiri en einu sjónarhormi?

Nýjar upplýsingar

  • Hvenær var síðan unnin?
  • Hvenær var síðan uppfærð síðast?
  • Eru tenglar á síðunni virkir?
  • Vísa tenglarnir í "góðar/áreiðanlegar" vefsíður og bæta þeir einhverju við efni vefsíðunnar?

 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica