Meðferð heimilda samkvæmt APA staðli

APA heimildaskráning með íslenskum áherslum (.pdf).

APA Style - ítarlegur upplýsingavefur um APA staðalinn.

Það sem einkum þarf að hafa í huga við notkun heimilda er annars vegar að geta þeirra heimilda sem stuðst er við með skýrum og skipulegum hætti í texta, hins vegar að skrá heimildir rétt í heimildaskrá. Samkvæmt APA "... samanstendur vísun í texta af nafni höfundar eða höfunda og útgáfuári verksins sem vísað er til eða vitnað í" (Friðrik H. Jónsson og Sigurður J. Grétarsson, 1998, bls. 70). Valkostur í staðlinum er að nota líka blaðsíðutal og getur kennari óskað eftir því að nemendur noti blaðsíðutal þegar þeir vitna óbeint til heimilda. Blaðsíðutal er alltaf notað þegar um beinar tilvitnanir er að ræða.

 Bein tilvitnun er það þegar texti er tekinn orðréttur úr heimild. Í slíkum tilfellum verður að geta höfundar, útgáfuárs og blaðsíðutals. Beinar tilvitnanir sem eru innan við 40 orð eru auðkenndar með gæsalöppum og felldar inní texta. Beinar tilvitnanir sem eru lengri en 40 orð eru hafðar inndregnar í texta (5 stafabil) án gæsalappa. Langar tilvitnanir þykja ekki prýða texta og er miðað við að bein tilvitnum sé ekki lengri en 10 línur. Dæmi: "Nokkuð mismunandi reglur gilda um uppbyggingu eftir því hvort skrifuð er ritgerð eða rannsóknarskýrsla" (Friðrik H. Jónsson og Sigurður J. Grétarsson, 1998, bls. 38).

Óbein tilvitnun: Ekki þykir gott að nota mikið af beinum tilvitnunum í texta. "Betra er að umorða texta þess höfundar sem vitnað er í og vitna þannig óbeint í hann" (Friðrik H. Jónsson og Sigurður J. Grétarsson, 1998, bls.73). Í slíkum tilvikum eru ekki notaðar gæsalappir, hins vegar er höfundar og útgáfuárs rits getið. Dæmi: Apar ná ekki tökum á setningafræði. Það staðfesta tilraunir manna til að kenna þeim að tala (Gleitman, 1986), eða : Af tilraunum manna til að kenna öpum að tala má vera ljóst að þeir ná ekki tökum á setningarfræði (Gleitman, 1986). Þessar upplýsingar er einnig hægt að setja fram á annan hátt: a) Að öllu leyti inn í texta. Dæmi: Árið 1986 sýndi Gleitman fram á ... b) Að hluta til í texta og sviga. Dæmi: Rannsóknarniðurstöður Gleitmans (1986) staðfesta ...

 Dæmi um notkun APA-staðalsins frá UW-Madison Writing Center

Útgáfu af APA Style Guide to Electronic References (2007) finnur þú í afgreiðslu BUHR. 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica