Þjónusta við nemendur
Miðlun starfa
Ef þú hefur áhuga á að vera í hópi þeirra nemenda sem skoðaður er í tengslum við þau tækifæri sem koma á borð atvinnuþjónustunnar þarft þú að gera eftirfarandi:
- Skrá þig í gagnagrunn atvinnuþjónustunnar. Nemendur noti sama notendanafn og lykilorð og að innraneti. Passa þarf að skrá allar upplýsingar nákvæmlega og skammstafa ekki heiti á fyrirtækjum, skólum, prófgráðum o.s.frv.
- Hafa ber í huga að mikið af störfum sem koma inn á borð atvinnuþjónustunnar eru ekki auglýst á vefnum, heldur einungs leitað í gagnagrunninum að heppilegri samsvörun.
Einstaklingsráðgjöf
Sem nemandi eða fyrrum nemandi við HR gefst þér kostur á að hitta ráðgjafa atvinnuþjónustunnar og fá leiðsögn varðandi atvinnuleitina, t.d. í gerð ferilskrár og kynningarbréfa, viðtalstækni og aðra þætti umsóknarferlisins. Einnig til að ræða almennt um vinnumarkaðinn og finna út hvar áhuginn liggur. Atvinnuþjónustan getur, í samstarfi við námsráðgjöf, veitt ráðgjöf varðandi áhugasviðsgreiningar. Þá getur atvinnuþjónustan að einhverju marki veitt upplýsingar um möguleika á framhaldsnámi og hverju það getur skilað í starfsframa.Vinnustofur
Vinnustofur verða haldnar reglulega og munu áherslur og framboð þeirra ráðast af eftirspurn. Meðal efna sem tekin verða fyrir má nefna:
- Gerð ferilskrár og kynningarbréfa
- Undirbúningur fyrir atvinnuviðtal
- Annað
Og hvað viltu fá í laun? - Fyrirlestur Aðalsteins Leifssonar:
