HR félagi

Við upphaf hverrar annar leita alþjóðafulltrúar stúdentafélags HR eftir sjálfboðaliðum úr hópi nemenda skólans til að gerast HR-félagar (e. buddy) fyrir erlenda skiptistúdenta sem koma í háskólann.

Helstu hlutverk HR-félaga:

  • Vera í samskiptum við skiptistúdenta fyrir komu til landsins
  • Sækja skiptistúdenta við komu til landsins og koma til gististaðar
  • Vera skiptistúdentum innan handar á meðan dvöl  stendur
  • Aðstoða alþjóðafulltrúa við ýmis verkefni og viðburði tengda skiptistúdentum

 

Með því að gerast HR-félagi kemst viðkomandi í samband við einstaklinga frá samstarfsháskólum HR erlendis. Þannig er meðal annars hægt að fá góða innsýn í siði og venjur annarra þjóða og reynslusögur og nákvæmar upplýsingar um hina ýmsu háskóla. HR-félagar geta haft mikil áhrif á upplifun erlendra skiptistúdenta, sem koma til náms við HR, af landi okkar og þjóð. Ekki má heldur gleyma því að með því að gerast HR-félagi öðlast viðkomandi tækifæri til að mynda varanleg vináttusambönd og taka virkan þátt í félagslífi HR.

Smelltu hér til að sækja um að gerast HR-félagi.

 

 

 

 

 

 

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica