RefWorks heimildavinna
RefWorks er veflægt heimildaskráningarforrit sem hjálpar þér að halda utan um og skipuleggja heimildir þínar.
Með RefWorks getur þú einnig búið til heimildaskrá með einni skipan samkvæmt völdum staðli, t.d. APA.
- Forritið er ekki sett upp á einstökum tölvum heldur notað á vefnum og takmarkast notkun þess því ekki við HR-netið.
Notendur þurfa hins vegar að vera innan HR-netsins (IP svæða HR) þegar þeir skrá sig í fyrsta sinn.
Aðeins þeir sem hafa netfang hjá HR geta skráð sig. - Að skráningu lokinni færðu staðfestingu á aðgangsorðum senda í tölvupósti, ásamt upplýsingum um svokallaðan Group Code.
Geymdu þessar upplýsingar vel!
Innskráning
- Smelltu hér á RefWorks eða á myndina hér að neðan.
Þá kemur upp valmyndin hér að neðan.
Smelltu þar á Sign up for an Individual Account ef þú ert að skrá þig inn í fyrsta sinn og fylgdu leiðbeiningunum sem upp koma.
- Þá átt þú Account sem þú getur notað.
Næst þegar þú skráir þig inn í RefWorks þarftu einungis að skrá þig inn sbr. leiðbeiningar hér að neðan.
| |
1 Skrifaðu notandanafn þitt 2 Settu inn lykilorðið sem þú bjóst þér til
3 Smelltu á Login og aðgangur þinn að RefWorks er orðinn virkur
|
- Athugaðu að alltaf þarf að slá inn Group Code þegar unnið er í RefWorks utan HR-netsins. Group Code Háskólans í Reykjavík er: RWREYKJAVIKU.
