Námsbókasafn í afgreiðslu BUHR, Ofanleiti og Nauthólsvík
Í Námsbókasafni er eintak af kennslubókum í grunnnámi á yfirstandandi misseri auk valinna bóka í framhaldsnámi. Bækurnar eru aðeins lánaðar til afnota á safni.
Kennarar geta beðið starfsfólk BUHR að taka frá efni úr safnkosti, útvega efni annars staðar frá - og/eða lagt inn efni sem þeir eiga sjálfir vegna kennslu einstakra námskeiða. Með því móti má tryggja öllum nemendum í námskeiði aðgang að efninu. Miðað er við að ítarefnisrit í eigu BUHR séu lánuð út í 3 sólarhringa eða viku. Bækur í einkaeign eru ekki lánaðar út af safninu. Greinar og önnur ljósrit eru eingöngu til afnota á safni. Mikilvægt er að bókasafninu berist upplýsingar um efni sem á að vera í Námsbókasafni með góðum fyrirvara og að beiðnin innihaldi sem flest eftirtalinna atriða:
- Nafn kennara og námskeiðs
- Upplýsingar v. greina: Heiti tímarits, nafn höfundar og titill greinar. Útgáfuár, árgangur og tölublaðsnúmer, blaðsíðutal
- Upplýsingar v. bóka: Titill, höfundur, útgáfunúmer, útgáfuár, útgefandi og ISBN
Umsjón
![]() |
Anna Kristín Stefánsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur í Nauthólsvík (M.2.20) annast@hr.is sími: 599 6491 |

