Styrkir fyrir nemendur

Nýnemastyrkir í grunnnámi

Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum nýnemastyrki á fyrstu önn þeirra við skólann. Styrkurinn nemur skólagjöldum á fyrstu önn námsins. Allir nýnemar sem sækja um skólavist og eru með yfir 8,0 í meðaleinkunn á stúdentsprófi geta sótt um styrkinn.

Forsetalisti HR

Þeir nemendur sem bestum árangri ná á hverju próftímabili eiga kost á að komast á forsetalista og fá skólagjöld næstu annar niðurfelld. 

Frumkvöðlasjóður Guðfinnu S. Bjarnadóttur

Frumkvöðlasjóður dr. Guðfinnu Bjarnadóttur fyrrverandi rektors var stofnaður 3. maí 2007.  Að stofnun þessa sjóðs standa Bakkavör Group,  Viðskiptaráð Íslands  og Háskólinn í Reykjavík og er honum ætlað að verðlauna þá nemendur Háskólans í Reykjavík sem leggja fram bestu viðskiptaáætlun í verkefnum innan skólans á ári hverju. 

Nýnemastyrkir í meistaranámi
Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum sem hefja meistaranám styrk á fyrstu önn þeirra við skólann. Meistaranámsstyrkurinn nemur skólagjöldum á fyrstu önn námsins. Styrkurinn er veittur nemendum sem hefja meistaranám á haustönn og vorönn.

Styrkir fyrir meistaranema í tækni- og verkfræðideild
Tækni- og verkfræðideild býður upp á aðstoðarkennarastyrki fyrir meistaranema. Styrkirnir eru ætlaðir meistaranemum í fullu námi sem ekki hafa fengið annan styrk tengdan meistaraverkefni.

Styrkir fyrir nemendur í tækni- og verkfræðideild og tölvunarfræðideild
Nemendur  í tækni- og verkfræðideild og tölvunarfræðideild geta sótt um styrk í námssjóð Sameinaðra verktaka við Háskólann í Reykjavík.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica