Reglur um skólagjöld
Innheimta
Skólagjöld eru innheimt fyrir hverja önn sérstaklega. Þau miðast við staðgreiðslu og skulu vera að fullu greidd í upphafi hverrar annar samkvæmt útgefnum gjalddaga/eindaga hverju sinni.
Innheimta skólagjalda miðast við skráningu nemanda eins og hún stendur við upphafsdag annar, samanber almanak skólans hverju sinni.
Greiði nemandi skólagjöld eftir eindaga leggst á þau innheimtukostnaður og hæstu lögleyfðu dráttarvextir frá gjalddaga reiknings.
Réttur til náms
Nemandi sem ekki greiðir skólagjöld sín á gjalddaga/eindaga getur vænst þess að hafa fyrirgert rétti sínum til að hefja nám eða stunda áframhaldandi nám við skólann. Hafi nemandi ekki greitt skólagjöld sín innan 30 daga frá eindaga skólagjalda verður hann skráður úr námi og öllum aðgangi í próf og á net- og kennslukerfi skólans verður lokað.
Skuldi nemandi skólagjöld frá fyrri önnum getur hann ekki innritast í nám aftur fyrr en skuldin hefur verið greidd upp.
Nýnemar
Nýnemar eru ekki innritaðir í nám fyrr en skólagjöld hafa verið greidd. Ákveði deild að samþykkja nemanda eftir að formlegri innritun er lokið, fær nemandinn aðgang að kennslukerfi um leið og skólagjöld hafa verið greidd.
Skólagjöld nýnema í grunnnámi miðast alltaf við fullt nám, nema þegar skilgreint námsskipulag gerir ráð fyrir færri en 17 ECTS einingum á fyrstu önn.
Breyting á námskeiðsskráningu eftir upphafsdag annar
Skráning úr námskeiðum eftir upphafsdag annar hefur ekki áhrif á upphæð skólagjalda. Bæti nemandi við sig námskeiðum getur komið til hækkunar hafi nemandi ekki verið með fulla innheimtu skólagjalda fyrir.
Endurgreiðsla
Skólagjöld eru almennt óendurkræf. Við sérstakar kringumstæður getur nemandi þó sótt um endurgreiðslu skólagjalda, en það á aðeins við í algerum undantekningartilvikum svo sem vegna alvarlegra veikinda. Hvert mál er metið sérstaklega. Sæki nemandi um endurgreiðslu þarf hann að leggja inn skriflegt erindi til Fjármálasviðs þess efnis þar sem ástæður beiðninnar eru útskýrðar og viðeigandi vottorðum og gögnum skilað inn.
Upphæð skólagjalda og trygging fyrir föstu verðlagi
Skólagjöld eru ákvörðuð í tengslum við fjárhagsáætlun skólans hverju sinni. Skólagjöld hjá nemendum sem hafa hafið nám við skólann hækka að öllu jöfnu ekki umfram almennar verðlagshækkanir þar til prófgráðu er lokið í samfelldu námi. Þessi trygging gildir í allt að þrjú ár eftir að nemandi innritast í viðkomandi gráðu (getur gilt lengur ef ekki er boðið upp á að taka gráðuna á þremur árum). Sjá nánar í töflu með upphæð skólagjalda og hlutfalli m.v. skráðar einingar.
Fyrirspurnir og umsóknir vegna ofangreindra reglna berist í pósthólfið innheimta@hr.is
Beiðnir um breytingar á skráningu nemenda í námskeið berist í pósthólfið nemendabokhald@ru.is

