millimynd

Háskólinn í Reykjavík undirbýr stjórnendur og sérfræðinga framtíðarinnar með framúrskarandi kennslu, tengingu við innlent og erlent atvinnulíf og hann gefur okkur innsýn í framtíðina í gegnum brautryðjandi rannsóknir og virkt alþjóðasamstarf. Ef þú vilt undirbúa þig fyrir framtíðina, læra og þroskast í skemmtilegu, skapandi og krefjandi umhverfi þá er Háskólinn í Reykjavík fyrir þig.

 

Ertu að spá í HR?

Háskólinn í Reykjavík býður tæplega 700 námskeið á ári; rúmlega 500 í grunnnámi og u.þ.b. 160 á meistarastigi með þarfir nemenda og atvinnulífsins í huga.

Deildir skólans eru fimm; lagadeild, viðskiptadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verkfræðideild og kennslufræði- og lýðheilsudeild. Að auki er boðið upp á nám í frumgreinadeild og Opni háskólinn býður upp á rúmlega 400 námskeið.

Háskólinn í Reykjavík hefur gefið út rafrænan bækling um grunnnám við skólann. Vinsamlega smelltu hér ef þú vilt sækja bæklinginn.

HVENÆR GET ÉG SÓTT UM?

Opnað er fyrir almennar umsóknir í febrúar ár hvert. Almennur umsóknarfrestur er til 31. maí og 30. nóvember ár hvert nema annað sé tekið fram. Í meistaranám geta aðrar dagsetningar átt við og kemur það þá fram á umsóknarsíðu. Í sumum tilvikum er um tvo umsóknarfresti að ræða, t.d. í MBA-námi.

INNTÖKUSKILYRÐI

Umsækjendur í grunnnám þurfa að öllu jöfnu að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi. Inntökuskilyrði eru þó breytileg eftir deildum og er nánari upplýsingar að finna á vef skólans, www.hr.is. Við val á nemendum eru einkunnir á stúdentsprófi lagðar til grundvallar en einnig er tekið tillit til þeirrar námsbrautar sem umsækjandi útskrifaðist af. Frekari menntun og starfsreynsla er jafnan talin umsækjanda til tekna.

STÚDENTAÞJÓNUSTA HR

Stúdentaþjónusta HR annast náms- og starfsráðgjöf innan HR. Stúdentaþjónustan leggur áherslu á að styrkja nemendur sem einstaklinga og námsmenn meðal annars með einstaklingsviðtölum, hópráðgjöf, áhugakönnun og fjölbreyttum námskeiðum. Á hverju skólaári býður Stúdentaþjónustan nemendum yfir fimmtíu þverfagleg námskeið þar sem fjallað er meðal annars um náms- og prófatækni, samskiptafærni, lífsstíl og hamingju.

Í boði eru viðtalstímar fyrir einstaklinga sem vilja fá námsráðgjöf eða kynningu á skólanum. Þar fyrir utan er hægt að hringja á skrifstofu skólans að Ofanleiti, 599 6200 eða að Höfðabakka, 599 6400 og og fá frekari upplýsingar eða panta viðtal hjá námsráðgjafa.

ATVINNUÞJÓNUSTA HR

Hlutverk Atvinnuþjónustu HR er að aðstoða fyrirtæki og stofnanir við að finna hæfa framtíðarstarfsmenn í hópi núverandi og útskrifaðra nemenda skólans. Atvinnuþjónustan leggur sig fram um að veita góða og faglega starfsráðgjöf. Mikilvægur þáttur í starfi Atvinnuþjónustunnar er að veita nemendum skólans fræðslu og ráðgjöf í tengslum við stjórnun starfsframa og undirbúning fyrir atvinnuleit að námi loknu. Atvinnuþjónustan býður nemendum reglulega upp á vinnustofur þar sem farið er yfir hagnýt atriði sem snúa að vinnumarkaði, atvinnuleit og hvernig nemendur geta stjórnað eigin starfsframa.

STÚDENTAFÉLAG HR

Stúdentafélagið (SFHR) er hagsmunafélag stúdenta við Háskólann í Reykjavík. Félaginu ber að standa vörð um hagsmuni félagsmanna sinna sem og að auka einingu meðal nemenda skólans. Hver deild við skólann hefur sitt hagsmunafélag sem stendur vörð um hagsmuni félagsmanna sinna.

SKÓLAGJÖLD ERU LÁNSHÆF HJÁ LÍN

Allt nám í Háskólanum í Reykjavík (að Opna háskólanum undanskildum) er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Nám á frumgreinasviði, önn 2 – 4, er einnig lánshæft.

Upplýsingar um skólagjöld má nálgast á vef skólans,www.hr.is/skolagjold. Full skólagjöld eru greidd fyrir átta einingar eða fleiri í grunnnámi til háskólagráðu.

STYRKIR

Nýnemastyrkir fyrir afburðanemendur í grunnnámi Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum nýnemastyrki á fyrstu önn þeirra við skólann. Styrkurinn nemur skólagjöldum á fyrstu önn námsins. Allir nýnemar sem sækja um skólavist og eru með yfir 8,0 í meðaleinkunn á stúdentsprófi geta sótt um styrkinn.

Nýnemastyrkir í meistaranámi Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum sem hefja meistaranám styrk á fyrstu önn þeirra við skólann. Meistaranámsstyrkurinn nemur skólagjöldum á fyrstu önn námsins. Styrkurinn er eingöngu veittur nemendum sem hefja nám á haustönn.

Forsetalisti HR Þeir nemendur sem bestum árangri ná á hverju próftímabili eiga kost á að komast á forsetalista og fá skólagjöld næstu annar niðurfelld.

Frumkvöðlasjóður Guðfinnu S. Bjarnadóttur Frumkvöðlasjóður dr. Guðfinnu Bjarnadóttur fyrrverandi rektors var stofnaður 3. maí 2007. Að stofnun þessa sjóðs standa Bakkavör Group, Viðskiptaráð Íslands og Háskólinn í Reykjavík og er honum ætlað að verðlauna þá nemendur Háskólans í Reykjavík sem leggja fram bestu viðskiptaáætlun í verkefnum innan skólans á ári hverju.

Styrkir fyrir meistaranema í tækni- og verkfræðideild Nemendur í meistaranámi við tækni- og verkfræðideild geta sótt um aðstoðarkennarastyrki og að vera á launum þann tíma sem unnið er að meistaraverkefni í fullu starfi.

Styrkir fyrir nemendur í tækni- og verkfræðideild og tölvunarfræðideild Nemendur í tækni- og verkfræðideild og tölvunarfræðideild geta sótt um styrk í námssjóð Sameinaðra verktaka við Háskólann í Reykjavík. 

NÝNEMADAGAR

HR leggur áherslu á að taka vel á móti nemendum sínum. Á NÝNEMADÖGUM HR er farið yfir tölvu- og upplýsingakerfi skólans, lykilatriði til árangurs í háskólanámi og ýmis konar þjónusta sem skólinn býður nemendum er kynnt. Einnig eru NÝNEMADAGAR HR kjörið tækifæri til að kynnast væntanlegum samnemendum. NÝNEMADAGAR hefjast á morgunverði í boði skólans fyrri daginn og enda á grillveislu í boði Stúdentafélags HR síðari daginn.

HÚSNÆÐISMÁL

Háskólinn í Reykjavík er aðili að Byggingafélagi námsmanna. Aðilar að SFHR eru sjálfkrafa aðilar að Byggingarfélagi námsmanna (BN) og Bandalagi íslenskra námsmanna (BÍSN). BN sér um byggingu og viðhald námsmannaíbúða sem standa nemendum HR til boða á nemendagörðum sem staðsettir eru víðsvegar um borgina.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica