Millisafnalán
BUHR pantar bækur og ljósrit af tímaritsgreinum úr tímaritum, sem eru ekki til í safninu. Starfsfólk HR og nemendur sem vinna að undirbúningi lokaverkefna eiga einkum kost á þessari þjónustu. Þjónustan er starfsmönnum að kostnaðarlausu.
Sérstök athygli er vakin á því að þessi þjónusta nær hvorki til bóka í söfnum á höfuðborgarsvæðinu, né til kaupa á greinum sem ekki eru fáanlegar frá öðrum bókasöfnum.
Best er að fylla út viðeigandi eyðublað (GREIN - BÓK). Eins má panta í tölvupósti á bokasafn@ru.is. Þegar grein er pöntuð þarf að slá inn fullan titil tímarits eða staðlaða skammstöfun, ISSN númer, höfund og titil greinar, ár, árgangur, hefti og blaðsíðutal. Þegar bók er pöntuð verður höfundur/ritstjóri, titill, ISBN númer, útgáfustaður og útgáfuár að koma fram.
Umsjón
|
|
Unnur Valgeirsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur 2. hæð í Nauthólsvík (M.2.20) netfang: unnurv@ru.is sími: 599 6377 |
BUHR lánar öðrum íslenskum háskólabókasöfnum efni í millisafnaláni ef ekki er verið að nota það í HR.
