Algengar spurningar
MIT Global Startup Workshop (MIT GSW) er alþjóðleg frumkvöðlaráðstefna sem haldin hefur verið árlega frá 1998 með þátttakendum frá allt að 60 löndum og 6 heimsálfum. Um 350 gestir sækja ráðstefnuna árlega og hefur hún öðlast mikilvægan sess í alþjóðlegu samfélagi nýsköpunar.
Hvar verður MIT Global Startup 2010?
Ráðstefnan verður haldin dagana 24.-26. mars á Hilton Hótel Nordica
Hverjir standa að MIT GSW 2010?
Ráðstefnan er skipulögð af hópi MBA nema við Háskólann í Reykjavík í samvinnu við nemendur frá MIT háskólanum í Boston og Innovit, nýsköpunar- og frumkvöðlasetur.
Afhverju MIT GSW á Íslandi 2010?
Ísland var valið úr hópi tuttugu umsækjenda og ekki síst vegna þess að Ísland var fyrst þjóða að finna fyrir hinni alþjóðlegu fjármálakreppu og því enn mikilvægara en áður að ýta undir hvers konar frumkvöðlastarfsemi og skapa þannig ný störf og tækifæri.
Fyrir hverja er MIT GSW?
MIT GSW er öflugt samfélag nýsköpunar og framúrskarandi vettvangur til að auka þekkingu og efla tengsl háskólanema, frumkvöðla, sprotafyrirtækja, fjárfesta, háskólakennara, fyrirtækja og stofnana um allan heim.
Hvert er markmið MIT GSW?
Markmið MIT GSW er að sameina hugmyndaauðgi þeirra sem eru að feta sín fyrstu spor og reynslumeiri aðila, í þeim tilgangi að efla stoðkerfi nýsköpunar, hvetja til athafnasemi og stuðla að endurreisn efnahagslífsins.
Nánar um MIT Global Startup Workshop
