MIT Global Startup Workshop 2010

 
MIT Global Startup Workshop

Horfum til framtíðar með nýsköpun, hugviti og grænni orku

MIT Global Startup Workshop (MIT GSW) er alþjóðleg ráðstefna um nýsköpun og frumkvöðlaumhverfið sem haldin hefur verið árlega frá 1998 með þátttakendum frá allt að 60 löndum og 6 heimsálfum. 

Um 350 gestir sækja ráðstefnuna árlega og hefur hún öðlast mikilvægan sess í alþjóðlegu samfélagi nýsköpunar. MIT GSW er framúrskarandi vettvangur til að efla þekkingu og tengslamyndun milli háskólanema, frumkvöðla, sprotafyrirtækja, fjárfesta, háskólakennara, fyrirtækja og stofnanna frá öllum heimsálfum.

Ráðstefnan er skipulögð af hópi MBA nema við Háskólann í Reykjavík í samvinnu við nemendur frá MIT háskólanum í Boston og Innovit, nýsköpunar- og frumkvöðlasetur.

Nú þegar hafa heimsþekktir frumkvöðlar staðfest komu sína á ráðstefnuna sem verður þéttskipuð fyrirlestrum, pallborðsumræðum og gagnvirkum vinnusmiðjum.

Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er"Conquering the Economic Crisis with Innovation, Entrepreneurship and Green Energy".

Helstu fyrirlesarar:

  • Robin_Chase
  • Robin Chase: Stofnandi Zipcar og valin ein af „100 Most Influential People“ af Time magazine 2009

  • Alf_Bjorseth
  • Alf Bjorseth: Stofnandi Renewable Energy Corp í Noregi og handhafi "Royal Order St Olav"

  • nader_darehshori
  • Nader Darehshori: Fjárfestir og fyrrverandi forstjóri Houghton Mifflin og Cambian Learning
  • ken_morse
  • Ken Morse: Raðfrumkvöðull og stofnandi frumkvöðlaseturs MIT háskóla

  • Kivel
  • Richard Kivel: Forstjóri Rhapsody Biologics og lektor við MIT Sloan School of Management

Framsögur og umræður fara fram á ensku




 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica