Við flytjum!

11.1.2010

Þann 11. janúar fögnum við þeim stórkostlega áfanga að flytja í nýbyggingu HR í Nauthólsvík. Við ætlum að gleðjast saman þennan dag og gera hann verulega eftirminnilegan.

Þá búum við til flutningalest nemenda og kennara og göngum saman frá Ofanleiti og yfir í Nauthólsvík.

Vegna göngunnar fellur kennsla niður fyrstu 3 kennslustundirnar þ.e. frá kl. 8:30-11:05.

  • 9:15  Allir nemendur og starfsmenn mæta í Ofanleitið (klæddir eftir veðri).
  • 9:30  Gengið af stað, meðfram Kringlumýrarbraut (yfir Bústaðarveg) og svo yfir göngubrúnna yfir Kringlumýrarbraut, þar áfram neðan við kirkjugarðinn og inn í Nauthólsvík.

Í Nauthólsvík bíður okkar heitt kakó og flutt verða stutt ávörp.  Hægt verður að ganga um bygginguna og skoða hana, en allir nemendur og starfsmenn fá afhent kort af byggingunni þegar þeir koma í hús.  Kennsla hefst svo skv. stundaskrá kl. 11:10.

Stöðugar rútuferðir verða á milli Nauthólsvíkur og Ofanleitis frá kl. 8:45-17:00. Þeir sem koma á bíl geta því valið hvort þeir leggi bílnum sínum í Ofanleiti eða í Nauthólsvík áður en við förum í gönguna.



 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica