Starfsfólk HR

Yfir 500 manns koma að vinnunni við Háskólann í Reykjavík á hverju ári, en þar af er um helmingurinn stundakennarar og dæmatímakennarar. Fastir akademískir starfsmenn eru um 160 í 130 stöðugildum, starfsmenn við stjórnun, stoðþjónustu og á skrifstofum deilda eru um 85, og starfsmenn Opna háskólans (þar með talið frumgreinanám HR) eru um 20.

Kyn starfsmanna HR skiptist þannig að meðal fastra starfsmanna eru 45% konur og 55% karlar, en í hópi lektora, dósenta og prófessora eru konur um 20%.

Starfsfólk HR á árinu 2009 kom frá alls 27 löndum, og var hlutfall erlendra starfsmanna við rannsóknir og kennslu um 19%. Af erlendum starfsmönnum sem eru í fullu starfi við HR eru 23% með annað þjóðerni en íslenskt. Um helmingur erlendra starfsmanna er frá löndum EES svæðisins, en helmingur utan þess.

Starfsfólk HR við kennslu og rannsóknir hefur almennt lokið meistaraprófi eða doktorsprófi á sínu fræðasviði. Hlutfall lektora, dósenta og prófessora með doktorspróf var 65% á árinu 2009.

HR hefur tvisvar verið valinn Fyrirtækis ársins hjá VR og starfsánægjumælingar hafa ávallt sýnt góða niðurstöðu. Kannanir á viðhorfum starfsmanna eru gerðar á tveggja ári fresti og niðurstaðan í nóvember-desember 2009 sýndi að starfsánægja í HR mælist 4,18 af 5,0 mögulegum.

 

 

 

 

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica