Mannauðsstefna í rannsóknum - "Charter & Code"

Háskólinn í Reykjavík viðurkenndur af Evrópusambandinu fyrir starfsumhverfi rannsóknafólks

Í maí 2010 fékk Háskólinn í Reykjavík viðurkenningu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem vinnustaður sem fylgir viðmiðum Evrópusambandsins um gott starfsumhverfi fyrir rannsóknafólk. Viðurkenningin byggir á viðmiðum sem sett voru árið 2005 í European Charter for Researchers og Code of Conduct for the Recruitment of Researchers.

Með þessu hefur skólinn skuldbundið sig til að aðlaga mannauðsstefnu og starfsumhverfi rannsóknafólks við skólann að stefnu Evrópusambandsins á þessu sviði, og mun taka þátt í úttektum og eftirfylgniathugunum hvað það varðar næstu árin.

Stefna framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um starfsumhverfi rannsóknafólks kemur fram í tveimur skjölum sem undirrituð hafa verið af fjölmörgum háskólum, og virk þátttaka í innnleiðingu þeirra er nú hafin í allmörgum skólum. Viðmiðin koma fram í skjölum sem bera heitið Code of Conduct for the Recruitment of Researchers og European Charter for Researchers. Allir íslenskir háskólar undirrituðu þessi skjöl árið 2007, en HR er fyrsti íslenski háskólinn sem tekur þátt í formlegu innleiðingarverkefni. Með þessu vill skólinn styrkja stefnumótun sína um að verða rannsóknaháskóli í fremstu röð, enda sterkar rannsóknir mikilvæg næring fyrir kennsluna og nám nemenda.  

Vinnuhópur innan háskólans kláraði vorið 2010 þá greiningarvinnu sem nauðsynleg var sem fyrsta skref í innleiðingunni. Í framhaldi af því sótti Háskólinn um formlega viðurkenningu á þessu verkefni, og barst hún í maí 2010. Hér undir má sjá niðurstöður greiningarvinnunar, auk samantektar á helstu aðgerðum sem fyrirhugaðar eru.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica