Húsnæði skólans

Leiðbeiningasími vegna nýbyggingarinnar er
599 6500
Þar má meðal annars fá aðstoð við að rata um húsið og upplýsingar um hvar deildir og starfsmenn er að finna.

Svör við spurningum varðandi húsnæði skólans

Hvar fer kennslan fram?

Á vorönn 2010 eru flestar námsgreinar kenndar í nýbyggingu HR við Nauthólsvík. Undantekningar á því er nám sem heyrir undir kennslufræði- og lýðheilsudeild, lagadeild, Opna háskólann, frumgreinamennt og MBA námið - en kennsla þar fer fram í Ofanleiti 2 (við hlið Verslunarskólans).

Hvar fæ ég / kaupi ég / borga ég...

Öll sala til nemenda, til dæmis á aðgangskortum, hugbúnaði, minniskubbum, prentkvóta og heftum með lesefni fer fram í aðalmóttöku á 1. hæð í Nauthólsvík (ekki lengur á bókasafni) og í aðalmóttöku í Ofanleiti.

Aðalmóttökur afgreiða einnig námsferla i gegnum Kennslusvið, vottorð og sjá um aðra almenna afgreiðslu sem fyrr.

Bóksala stúdenta er með sölu á bókum og ritföngum í herbergi vinstra megin á fyrstu hæð í Nauthólsvík þegar gengið er inn um aðalinnganginn.  Opnunartími er frá kl. 11.00 til 16.30 alla virka daga.

Móttökur í skólanum eru fjórar;

  • Aðalmóttaka í Ofanleiti, 5. hæð
  • Aðalmóttakan í Nauthólsvík er á fyrstu hæð rétt við innganginn
  • Móttaka fyrir bókasafn, stúdentaþjónustu og alþjóðaskrifstofu er á 2. hæð í álmunni „Mars“
  • Móttaka fyrir skrifstofur deildanna, stoðdeildir og rektor er á 3. hæð í Mars
  • Einnig er sérstök móttaka tölvu- og tækniþjónustu á 2. hæð í Mars

Hvenær eru byggingar skólans opnar?

Í Ofanleiti er byggingin opin frá 7:15 – 19:15. Eftir það er hægt að komast inn með aðgangskorti. Afgreiðsla í Ofanleiti (skrifstofan á 5. hæð) er opin frá 8 til 16.

Í Nauthólsvík byggingin opin frá 7:15 – 19:15. Eftir það er hægt að komast inn með aðgangskorti. Afgreiðsla í Nauthólsvík (mótttaka við aðalinnganginn) er opin frá 8 til 17.

Hvernig fær maður aðgangskort og hvar gilda þau?

Aðgangskort fást í afgreiðslu á 5. hæð í Ofanleiti og í móttöku á 1. hæð í Nauthólsvík (staðsett við aðalinngang).

Aðgangur gildir í allar byggingar skólans. (Ofanleiti, Lessal í Kringlu (prentsmiðja) og Nauthólsvík).  Viðkomandi þarf að vera búinn að setja inn mynd af sér á innra netinu (MySchool) til að hægt sé að gefa út kortið.

Eldri aðgangskort og -kódar gilda áfram í nýbyggingunni.

Hvað tákna stofunúmerin?

Stofunúmer í Ofanleiti eru þriggja stafa tölur, stundum með bókstafnum O fyrir framan, t.d. O-101. Fyrsti tölustafurinn segir til um á hvaða hæð viðkomandi stofa er. Upplýsingaskilti í stigaganginum (við lyfturnar) sýna í hvorri álmunni tiltekin númer eru.

Stofunúmer í nýbyggingunni eru á forminu M.1.01. Bókstafurinn táknar álmu, fyrst um sinn eru það einungis Venus og Mars sem koma til greina. Þegar staðið er í stóra ganginum (Jörð) með bakið í miðju byggingarinnar er Venus á vinstri hönd.

Næst er númer hæðar (hér 1) og loks raðnúmer innan hæðarinnar (hér 01).

Hvernig eru almenningssamgöngur í Nauthólsvík?

Strætisvagnaleiðir 16 og 19 halda uppi ferðum í Nauthólsvík. Ferðir eru á 15 mínútna fresti frá Hlemmi.

Strætóskýli er við akstursleiðina upp að skólanum, skammt frá hringtorginu.

Nemendur og starfsmenn eru hvattir til að nýta strætisvagna eins og mögulegt er, enda mikilvægt að minnka umferðarálag.

Einnig er minnt á að hjóla- og gönguleiðir að skólanum eru mjög góðar. Hjólageymsla verður sett upp við skólann innan skamms.

Hvaða leið er best að aka að nýbyggingunni?

Tvær leiðir eru að háskólanum í Nauthólsvíkinni. Annars vegar um Flugvallarveg og hins vegar um Nauthólsvíkurveg sem er nýr vegur frá Hringbraut (rétt við Umferðarmiðstöðina).

Nemendur eru hvattir til að samnýta bíla til að minnka umferðarþungann fyrstu vikurnar.

Hvar er hægt að leggja við nýbygginguna?

Bílastæði fyrir starfsmenn og nemendur eru staðsett fyrir norðan bygginguna.  Bílastæðin eru aðgengileg frá svokölluðum Menntasveig sem kemur rétt eftir hringtorgið. 

Næst skólanum er sérstakt bílastæði sem er eingöngu ætlað þeim sem koma saman fleiri en einn einstaklingur í bíl og fyrir gesti. Með þessu vill skólinn hvetja starfsmenn og nemendur til að samnýta bíla, og er það liður í að vernda umhverfið og lágmarka umferðarþunga að skólanum.

Hvar er gengið inn í nýbygginguna?

Fyrstu mánuðina verður aðalinngangur í bygginguna á miðri þeirri hlið sem vísar að Perlunni, þ.e. þeirri hlið sem er lengst til vinstri þegar komið er akandi að byggingunni.

Hvernig ratar maður um nýbygginguna?

Allir nemendur fá handhægt yfirlitskort í afgreiðslum skólans (bæði í nýbyggingunni og í Ofanleiti). Fyrsti áfanginn sem tekinn er í notkun samanstendur af tveimur álmum (Venus og Mars) sem aðskildar eru af breiðum gangi (Jörðin). Þægilegt er að nota þann gang sem viðmiðun þegar þarf að ná áttum.

Flestar kennslustofur eru á jarðhæð og þar eru einnig afgreiðsla, mötuneyti og fleira. Lesaðstaða og fleiri kennslustofur eru á annarri hæð. Á þriðju hæð eru skrifstofur starfsmanna.



HR við Nauthólsvík

Í byrjun árs 2008 hófust byggingarframkvæmdir við 36.000 fermetra nýbyggingu Háskólans í Reykjavík. Svæði háskólans upp af Nauthólsvík við rætur Öskjuhlíðar skapar tækifæri til að byggja upp þekkingar- og nýsköpunarsamfélag á heimsmælikvarða. Svæðið nýtur góðs af fögru umhverfi Öskjuhlíðar og Nauthólsvíkur, nálægðar við miðborg Reykjavíkur, stúdentaíbúðir og eina bestu íþróttaaðstöðu á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess eru mörg helstu fyrirtæki og stofnanir landsins í nágrenninu sem auðveldar sterk tengsl við atvinnulífið.

Leiðarljósið við hönnun háskólabyggingarinnar tengist stefnumörkun HR um opinn, alþjóðlegan háskóla þar sem eftirfarandi áhersluatriði eru í fyrirrúmi:
• Sveigjanleiki í hönnun og rekstri
• Opin háskólabygging með auðveld samskipti milli allra háskólasviða
• Hvetjandi starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á þægindi, gæði og margbreytileika
• Stúdentamiðuð bygging þar sem vinnuaðstaða nemenda og þjónusta er í fremstu röð
• Byggingin falli vel að umhverfinu og styrki útivistarsvæði Nauthólsvíkur og Öskjuhlíðar

Á þessu 20 hektara háskólasvæði sem Reykjavíkurborg úthlutaði HR er viðbótarrými fyrir nýsköpunar- og frumkvöðlasetur, rannsóknarstofnanir, sprotafyrirtæki eða aðra starfsemi sem á samleið með því þekkingarsamfélagi sem HR vill byggja upp á svæðinu.

Hönnuðir og ráðgjafar í fremstu röð

Henning Larsen Architects í Danmörku og Arkís á  Íslandi eru arkitektar háskólabyggingarinnar. Mannvit annast verkfræðilega hönnun í samstarfi við Verkís og Cowi í Danmörku. Landslagsarkitektar eru Landmótun. Efla verkfræðistofa hefur verið sérstakur ráðgjafi HR í þessu verkefni og er jafnframt með eftirlit  með byggingarframkvæmdum. Byggingin er í eigu Eignarhaldsfélagsins Fasteignar sem leigir hana með kauprétti á fimm ára fresti til HR til næstu 50 ára. Verkefnastjórn fyrir hönd Fasteignar við framkvæmd hönnunar og samskipta við HR er í höndum Þróunar og ráðgjafar ehf.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica