Stærðfræði í tækni- og verkfræðideild
Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík leitar að stærðfræðingi í akademískt starf (lektor, dósent eða prófessor) við kennslu og rannsóknir.
Til greina koma allir stærðfræðingar með doktorspróf frá viðurkenndum háskóla. Reynsla af rannsóknum er æskileg og áhugi á rannsóknum í framtíðinni skilyrði. Við erum opin fyrir umsóknum stærðfræðinga af öllum sérsviðum, en æskilegt er að sérsvið umsækjanda tengist hagnýtingu stærðfræðigreiningar, t.d. hreyfikerfum, diffurjöfnum, hlutafleiðujöfnun eða bestun. Einnig er æskilegt að umsækjandi hafi þekkingu og reynslu í tölulegri greiningu og tölulegum lausnaraðferðum. Kennsla mun að mestu fara fram við tækni- og verkfræðideild skólans og umsækjendur í þessa stöðu þurfa að hafa fullt vald á íslensku.
Ráðið verður í stöðu lektors, dósents eða prófessors og verður starfsheitið ákvarðað út frá hæfnismati. Í boði eru samkeppnishæf laun og áhugavert og krefjandi starf við sköpun nýrrar þekkingar í metnaðarfullu og lifandi háskólaumhverfi.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Gunnar Guðna Tómasson deildarforseta Tækni- og verkfræðideildar (gunnargt@ru.is). Umsóknir skulu sendar á netfangið appl@ru.is fyrir 1. desember, og skulu fela í sér starfsferilskrá, lista yfir birtar rannsóknir, lýsingu á kennslureynslu og upplýsingar um umsagnaraðila.
Tækni- og verkfræðideild er ein stærsta háskóladeild landsins með tæplega 1000 nemendur og um 50 fasta akademíska starfsmenn á fjölmörgum sviðum tækni- og verkfræði. Deildin var stofnuð 2005 þegar Háskólinn í Reykjavík og Tækniháskóli Íslands voru sameinaðir. Kennsla til BSc gráðu í verkfræði hófst haustið 2005 og frá og með haustinu 2008 var framboð á meistaranámi við deildina stóraukið. Áformað er að bjóða doktorsnám við deildina á næstu misserum.
