Háskólakennari á byggingarsviði (50% starf) (tækni- og verkfræðideild)

Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík leitar að öflugum einstaklingi á sviði byggingarverkfræði, byggingartæknifræði eða skyldra fagsviða í stöðu aðjúnkts eða kennara (50% starf).  Meginstarfsvið er kennsla í grunnnámi á byggingarsviði, en þar undir falla námsbrautir til BSc gráðu í byggingartæknifræði og byggingafræði og námsbraut til diplóma gráðu í byggingariðnfræði. 

Umsækjendur þurfa að hafa MSc próf eða jafngilt, og jafnframt er leitað eftir góðri  fagtengdri starfsreynslu.  Umsækjendur þurfa að hafa áhuga og hæfni til að miðla þekkingu sinni og að viðhalda og efla eigin þekkingu.  Reynsla af kennslu og rannsóknum er æskileg.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Gunnar Guðna Tómasson deildarforseta Tækni- og verkfræðideildar HR (gunnargt@ru.is). Umsóknir skulu sendar á netfangið appl@ru.is fyrir 30. apríl, og skulu fela í sér starfsferilskrá, lista yfir birtar rannsóknir, lista yfir helstu verkefni, lýsingu á kennslureynslu og upplýsingar um umsagnaraðila.

Tækni- og verkfræðideild er ein stærsta háskóladeild landsins með hátt í 1000 nemendur og um 50 fasta akademíska starfsmenn á fjölmörgum sviðum tækni- og verkfræði. Deildin var stofnuð þegar Háskólinn í Reykjavík og Tækniháskóli Íslands voru sameinaðir. Kennsla í verkfræði hófst haustið 2005 og meistaranám við deildina er í örri uppbyggingu. Áformað er að bjóða doktorsnám við deildina á næsta ári.

Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði. Akademískar deildir skólans eru fimm: Kennslufræði- og lýðheilsudeild, Lagadeild, Tölvunarfræðideild, Tækni- og verkfræðideild og Viðskiptadeild. Nemendur nálgast 3000, en starfsmenn skólans eru yfir 500 í 270 stöðugildum.



 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica