Lektor, dósent eða prófessor á byggingarsviði (tækni- og verkfræðideild)

Tækni- og verkfræðideild leitar að öflugum einstaklingi til að ganga til liðs við hóp sérfræðinga á byggingarsviði. Starfið felst í að byggja upp og stunda rannsóknir ásamt því að sinna kennslu í grunn- og framhaldsnámi. Á byggingarsviði er boðið upp á framhaldsnám með sérhæfingu í framkvæmdastjórnun, mannvirkjahönnun, steinsteyputækni og umferð og skipulagi.  Æskilegt er að umsækjandi hafi sérhæft sig í námi, starfi og rannsóknum á einu eða fleirum framangreindra sviða.  Háskólinn í Reykjavík tryggir akademískum starfsmönnum stuðning og aðstöðu til að byggja upp rannsóknarstarfsemi.  

Hæfniskröfur:
• Doktorsgráða í verkfræði.
• Rannsóknareynsla.
• Reynsla úr atvinnulífinu er kostur. 
• Kennslureynsla er kostur.

Ráðið verður í stöðu lektors, dósents eða prófessors og verður starfsheitið ákvarðað út frá hæfnismati.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Gunnar Guðna Tómasson deildarforseta Tækni- og verkfræðideildar HR (gunnargt@ru.is). Umsóknir skulu sendar á netfangið appl@ru.is fyrir 30. apríl, og skulu fela í sér starfsferilskrá, lista yfir birtar rannsóknir, lista yfir helstu verkefni, lýsingu á kennslureynslu og upplýsingar um umsagnaraðila.

Tækni- og verkfræðideild er ein stærsta háskóladeild landsins með hátt í 1000 nemendur og um 50 fasta akademíska starfsmenn á fjölmörgum sviðum tækni- og verkfræði. Deildin var stofnuð þegar Háskólinn í Reykjavík og Tækniháskóli Íslands voru sameinaðir. Kennsla í verkfræði hófst haustið 2005 og meistaranám við deildina er í örri uppbyggingu. Áformað er að bjóða doktorsnám við deildina á næsta ári.

Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði. Akademískar deildir skólans eru fimm: Kennslufræði- og lýðheilsudeild, Lagadeild, Tölvunarfræðideild, Tækni- og verkfræðideild og Viðskiptadeild. Nemendur nálgast 3000, en starfsmenn skólans eru yfir 500 í 270 stöðugildum.

 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica