Lektor, dósent eða prófessor á sviði orku (tækni- og verkfræðideild)
Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík leitar að öflugum einstaklingi til að ganga til liðs við hóp sérfræðinga á véla- og rafmagnssviði. Starfið felst í að byggja upp og stunda rannsóknir ásamt því að sinna kennslu í grunn- og framhaldsnámi á sviði orku. Það er kostur ef umsækjandi hefur starfað að hönnun eða sinnt öðrum hefðbundnum verkfræðistörfum á almennum vinnumarkaði. Háskólinn í Reykjavík tryggir akademískum starfsmönnum stuðning og aðstöðu til að byggja upp rannsóknastarfsemi.
Hæfniskröfur:
• Doktorsgráða í verkfræði.
• Rannsóknareynsla.
• Reynsla úr atvinnulífinu er kostur.
• Kennslureynsla er kostur.
Ráðið verður í stöðu lektors, dósents eða prófessors og verður starfsheitið ákvarðað út frá hæfnismati.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Gunnar Guðna Tómasson deildarforseta Tækni- og verkfræðideildar HR (gunnargt@ru.is). Umsóknir skulu sendar á netfangið appl@ru.is fyrir 30. apríl, og skulu fela í sér starfsferilskrá, lista yfir birtar rannsóknir, lista yfir helstu verkefni, lýsingu á kennslureynslu og upplýsingar um umsagnaraðila.
Tækni- og verkfræðideild er ein stærsta háskóladeild landsins með hátt í 1000 nemendur og um 50 fasta akademíska starfsmenn á fjölmörgum sviðum tækni- og verkfræði. Deildin var stofnuð þegar Háskólinn í Reykjavík og Tækniháskóli Íslands voru sameinaðir. Kennsla í verkfræði hófst haustið 2005 og meistaranám við deildina er í örri uppbyggingu. Áformað er að bjóða doktorsnám við deildina á næsta ári.
Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði. Akademískar deildir skólans eru fimm: Kennslufræði- og lýðheilsudeild, Lagadeild, Tölvunarfræðideild, Tækni- og verkfræðideild og Viðskiptadeild. Nemendur nálgast 3000, en starfsmenn skólans eru yfir 500 í 270 stöðugildum.