Deildarfulltrúi í tækni- og verkfræðideild

Háskólinn í Reykjavík auglýsir eftir deildarfulltrúa í Tækni- og verkfræðideild.

Starfið felst í upplýsingagjöf, þjónustu og samskiptum við nemendur og kennara tækni- og verkfræðideildar. Deildarfulltrúi tilheyrir skrifstofu tækni- og verkfræðideildar, og ber ábyrgð á samskiptum við ákveðinn hóp nemenda og kennara, en starfar einnig náið með ýmsum stoðdeildum innan HR.

Leitað er að einstaklingi með háskólapróf (BA eða BSc), mjög góða tölvukunnáttu, öguð og skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og hæfni til að forgangsraða, góða færni í íslensku og ensku og brennandi áhuga á að stuðla að enn betra námsumhverfi í tækni- og verkfræðigreinum innan HR.

Umsóknir skulu sendar á netfangið appl@ru.is fyrir 3. mars, og skulu innihalda kynningarbréf, starfsferilskrá, mynd og upplýsingar um umsagnaraðila. Nánari upplýsingar veita Sigrún Þorgeirsdóttir skrifstofustjóri (sigrunth@ru.is) og Ásta Bjarnadóttir framkvæmdastjóri mannauðs- og gæðasviðs (asta@ru.is).


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica