Forseti tölvunarfræðideildar

 Háskólinn í Reykjavík óskar að ráða forseta tölvunarfræðideildar.

Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík veitir yfir 440 nemendum menntun á sviði tölvunarfræða, í grunnnámi, meistaranámi og doktorsnámi, og er deildin sú stærsta sinnar tegundar á Íslandi. Sjö rannsóknahópar og rannsóknasetur eru starfrækt við deildina en helstu rannsóknasviðin eru gervigreind, tölvuöryggi, gagnasöfn, máltækni, notendaviðmót og fræðileg tölvunarfræði, auk stærðfræði.

Markmið tölvunarfræðideildar er að bjóða nemendum upp á krefjandi nám í framsæknu og skapandi umhverfi. Lögð er áhersla á  alþjóðlega viðurkenndar rannsóknir, framsækna kennsluhætti og sterk tengsl við atvinnulífið. Deildin býður upp á alþjóðlegt rannsóknar- og starfsumhverfi, og nemendur deildarinnar geta nýtt sér möguleika til skiptináms við yfir 40 erlenda skóla.

Leitað er að leiðtoga til að stýra hæfum hópi starfsmanna við framþróun öflugrar og metnaðarfullrar deildar. Deildarforseti ber ábyrgð á akadamísku starfi og rekstri deildarinnar, situr í framkvæmdastjórn Háskólans í Reykjavík og heyrir beint undir rektor HR.

Hæfniskröfur:

·         Doktorspróf í tölvunarfræði eða skyldum greinum.

·         Reynsla af kennslu og rannsóknum.

·         Forystu- og stjórnunarhæfileikar.

Nánari upplýsingar um starfið gefur Ásta Bjarnadóttir hjá Háskólanum í Reykjavík (599-6200, asta@ru.is). Umsóknum skal skilað til Háskólans í Reykjavík á netfangið appl@ru.is, í síðasta lagi 1. mars.  Fylgigögn má senda til Háskólans í Reykjavík, b.t. Ástu Bjarnadóttur, Menntavegur 1, 101 Reykjavík. 

Allar fyrirspurnir og umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.

Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði. Akademískar deildir skólans eru fimm: Kennslufræði- og lýðheilsudeild,  lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verkfræðideild og viðskiptadeild.

Háskólinn í Reykjavík er samfélag yfir 3000 nemenda og yfir 500 starfsmanna og stundakennara. Um helmingur kennara eru virkir í íslensku atvinnulífi og einn af hverjum sex akademískum starfsmönnum kemur erlendis frá. Nám í öllum deildum Háskólans í Reykjavík er framsækið, tekur mið af því sem best gerist á alþjóðavettvangi og er í stöðugri þróun. Háskólinn býður nú upp á tæplega 800 námskeið á ári, um 600 í grunnnámi og 200 á meistara- og doktorsstigi, og mætir þannig þörfum nemenda og atvinnulífs.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica