Efnahagskreppa skapar sóknarfæri í frumkvöðlastarfsemi

30.6.2010

Undanfarin 11 ár hefur frumkvöðlastarfsemi um allan heim verið könnuð í umfangsmikilli samanburðarrannsókn á vegum alþjóðlega rannsóknarsamstarfsins Global Entrepreneurship Monitor (GEM).

Frumkvöðlastarfsemi hátt í 50 ólíkra landa hefur þannig verið könnuð árlega á sambærilegan hátt og niðurstöður könnunarinnar birtar í alþjóðlegri skýrslu. Í hverju þátttökulandi er að auki unnin skýrsla þar sem kafað er dýpra í niðurstöður í því landi.

Íslenska skýrslan kemur hér út í sjöunda sinn en Háskólinn í Reykjavík hefur borið veg og vanda af GEM -rannsókninni hér á landi frá árinu 2002.

Sjá nánari upplýsingar um rannóknina og skýrsluna í heild.

Megin markmið skýrslunnar fyrir árið 2009 eru fjögur:

  • Að gefa yfirlit yfir frumkvöðlastarfsemi á Íslandi árið 2009, umfang hennar, einkenni og umhverfi.
  • Að bera frumkvöðlastarfsemi á Íslandi árið 2009 saman við  undanfarin ár og samanburðarlönd.
  • Að kanna sérstaklega hvaða áhrif efnahagskreppan hefur haft á frumkvöðlastarfsemi.
  • Að birta ábendingar um hvað megi betur fara í umhverfi frumkvöðlastarfsemi á Íslandi.

Umfang frumkvöðlastarfsemi á Íslandi er mikið, en mismunandi eftir þjóðfélagshópum

Í GEM-rannsókninni er umfang frumkvöðlastarfsemi skilgreint sem hlutfall þeirra einstaklinga sem annaðhvort undirbúa nýja viðskiptastarfsemi eða hafa nýlega stofnað til hennar. Á árinu 2009 mældust 11,4% Íslendinga á aldrinum 1864 ára, eða um 22 þúsund manns, taka  þátt í frumkvöðlastarfsemi. Þetta er hæsta hlutfall í þeim hagkerfum sem við berum okkur saman við, en frumkvöðlastarfsemin er breytileg efir þjóðfélagshópum:


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica