Fundur um vistorku í samgöngum á Íslandi
Í dag var haldin ráðstefna um visthæfar samgöngur í tengslum við vinnu sem iðnaðarráðherra hefur hrundið af stað og skipun nefndar um orkuskipti í samgöngum.
Á ráðstefnunni kynntu aðilar sem tengjast visthæfum samgöngum verkefni sín og framtíðarsýn. Þar var meðal annars fjallað um breytingar á bílum með hefðbundnar vélar í rafbíla og um bifreiðar framtíðarinnar.
Gerð var grein fyrir stöðu þeirra verkefna sem unnið hefur verið að hér á landi á þessu sviði undanfarin ár eins og vetnisverkefni og metanverkefni og fjallað um lífdíeselframleiðslu á Íslandi, svo fátt eitt sé nefnt.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á vef Iðnaðarráðuneytisins. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar ljósmyndir sem teknar voru á ráðstefnunni.
