Guðrún Högnadóttir er heiðursfélagi í Stjórnvísi

25.5.2010

Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Opna háskólans við Háskólann í Reykjavík, var í síðustu viku valin heiðursfélagi í Stjórnvísi fyrir árið 2010. Hún er þriðji HR-ingurinn sem fær þennan heiður. Áður hafa Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor HR frá 1998-2007 og Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri fjármála- og þróunarsviðs HR, verið útnefnd sem heiðursfélagar í Stjórnvísi.

Í rökstuðningi fyrir vali á Guðrúnu segir meðal annars að hún hafi komið víða við í tengslum við rannsóknir og kennslu. Þá hafi hún unnið að margvíslegum verkefnum fyrir fyrirtæki og stofnanir á sviði skipulags-, mannauðs- og gæðamála.

„Í núverandi starfi sínu sem framkvæmdastjóri Opna háskólans við Háskólann í Reykjavík, nýtir Guðrún frumkvöðlahæfileika sína til að byggja upp, breyta og bæta í þágu betra mannlífs á öllum sviðum - en markmið Opna háskólans er að virkja þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði fólks með faglegu og hagnýtu námsframboði,“ segir enn fremur í rökstuðningnum.

Stjórnvísi er félag um framsækna stjórnun. Markmið þess er meðal annars að  stuðla að umbótum í stjórnun íslenskra fyrirtækja með miðlun þekkingar og reynslu meðal stjórnenda.

gudrunho

 

 

 

 

 

 

 

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica