Stjórnvöld verði að vinna náið með fyrirtækjum

14.5.2010

Dr. Christian Ketels, sérfræðingur við Harvard-háskóla, hélt erindi um klasa og klasastefnu í Háskólanum í Reykjavík í dag föstudag og var fyrirlesturinn vel sóttur. Hann sagði að stjórnvöld yrðu að vinna náið með fyrirtækjum hér á landi til að ná skjótari efnahagsbata.

Ketels kom víða við í erindi sínu og sagði meðal annars að ef klasauppbyggingu væri beitt rétt gætu klasar átt þátt í því að bæta samkeppnishæfni þjóða. Hann sagði enn fremur að ef yfirvöld tækju ákvörðun um að móta stefnu til að bæta samkeppnishæfni væri afar mikilvægt að allir hagsmunaaðilar væru þar virkir, þar á meðal atvinnulíf og stjórnarandstaða.

Klasar byggja á samkeppni og innbyrðis samvinnu eftir því sem við á og eru oftast sjálfsprottnar atvinnugreinar sem hafa tilhneigingu til að þyrpast saman á sömu svæðum.  Svæðin geta verið afar mismunandi, stundum einstaka borgir, héruð, þjóðríki eða á milli þjóða.

Ketels nefndi að Íslendingar ættu tvo „klasa á heimsvísu“ þ.e.a.s. í sjávarútvegi og í orkufrekum málmiðnaði og að þeir Michael Porter væru núna verkefnisstjórar á kortlagningu hins íslenska jarðvarmaklasa. Hann lýsti yfir ánægju sinni með framgang þeirrar vinnu og að Háskólinn í Reykjavík væri einn lykilþátttakenda í því verkefni. Það yrði kynnt á alþjóðlegri ráðstefnu Iceland geothermal 2010 þann 1. nóvember næstkomandi. 

Ketels ræddi erindi sitt í Sjónvarpinu og má sjá viðtalið hér.

Glærur frá erindi Ketels (pdf).


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica