Ferðavenjukönnun HR: 60% koma á einkabíl í skólann
Um 60% svarenda ferðavenjukönnunar Háskólans í Reykjavík koma á eigin einkabíl í skólann, rúmlega 10% koma á eigin bíl en með farþega eða fá far hjá öðrum og tæp 10% nota almenningssamgöngur. Hjólandi eða gangandi komu færri eða um 6%.
Könnunin var gerð í fyrsta skipti dagana 11. til 22. mars 2010. Hún var send til allra nemenda og starfsmanna HR og var megintilgangurinn að komast að því hvaða ferðamáta menn væru að nota til að komast til og frá HR.
Langflestir svarendur fara ekki reglulega af háskólalóðinni yfir daginn, eða 63%. Þeir sem fara reglulega af lóðinni fara oftast vegna hádegismatar (15%) eða vegna fundar (7%).
Spurt var hvort svarendur myndu nýta sér það ef HR byði upp á aðgang að bílum í stuttar ferðir á skólatíma. Um 35% segjast myndu frekar líklega eða mjög líklega nýta sér slíka þjónustu, en 45% telja frekar eða mjög ólíklegt að þeir myndu nýta sér hana. Tuttugu prósent eru óvissir.
Niðurstöður könnunarinnar verða meðal annars notaðar við innleiðingu umhverfisstefnu HR, en samgöngur eru ein meginstoð umhverfisstefnunnar, og meðal markmiða hennar er að hvetja til notkunar visthæfra bíla og almenningssamgangna og styðja við umhverfisvænar og heilsusamlegar ferðavenjur nemenda og starfsmanna.
