Ofbeldismenn eru ekki einsleitur hópur
Fremjendur ofbeldis gegn konum koma úr öllum hópum samfélagsins. Ofbeldismenn eru því ekki einsleitur hópur, eins og oft er haldið fram, heldur má í honum finna þverskurð samfélagsins.
Þetta er niðurstaða rannsóknar Elvu Daggar Ásu- og Kristinsdóttur, laganema við Háskólann í Reykjavík.
Elva Dögg greindi frá niðurstöðunum á hádegisfundi lagadeildar HR í dag.
Rannsóknin er hluti af meistaraprófsritgerð Elvu Daggar við lagadeildina sem unnin er undir leiðsögn Svölu Ólafsdóttur. Hún byggir á gögnum Kvennaathvarfsins frá árunum 2002 til 2008. Alls skoðaði hún 1.740 skýrslur athvarfsins þar sem skráðar eru upplýsingar um ofbeldi gegn konum og ofbeldismenn.
Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á það hverjir væru fremjendur ofbeldis gegn konum sem í Kvennaathvarf leita. Elva Dögg bar meðal annars upplýsingar um menntun og störf fremjenda saman við tölur frá Hagstofu Íslands um menntun og störf karla almennt á Íslandi á sama tíma.
Samanburðurinn leiddi í ljós að hóparnir væru eins í grófum dráttum. Því væri hægt að draga þá ályktun að ofbeldismenn kæmu úr öllum hópum samfélagsins.
