Framhaldsskólanemar undirbúa sig undir forritunarkeppnina

27.3.2010

Það var einstaklega mikið líf og fjör á göngum Háskólans í Reykjavík við Nauthólsvík síðdegis í gær, föstudag, þegar um níutíu framhaldsskólanemar undirbjuggu sig undir árlega forritunarkeppni framhaldsskólanna.

Keppnin hefst í dag, laugardag, klukkan níu og má búast við að áhugasamir framhaldsskólanemar fylli kennslustofur skólans þar sem þeir munu leysa margvísleg verkefni. Þar reynir á kunnáttu þeirra í forritun og sköpunargleði þeirra.

Markmið keppninnar er að efla og örva forritunaráhuga íslenskra ungmenna.

Keppendur koma frá flestum framhaldsskólum landsins og raða þeir sér í 29 lið. Keppninni er skipt í þrjár deildir: Alpha-deild, Beta-deild og Delta-deild. Keppendur raða sér í deildirnar eftir kunnáttu í forritun.

Tölvunarfræðideild HR stendur að keppninni með stuðningi Nýherja og CCP. Sigurvegarar í Alpha-deild fá niðurfelld skólagjöld hjá tölvunarfræðideild HR í eina önn en öll önnur verðlaun eru veitt af Nýherja. Þar má nefna myndavélar, minnislykla og heyrnartól.

Forritun--keppni

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica