Fjölmenni á fyrirlestramaraþoni
Fjöldi gesta hefur sótt árlegt Fyrirlestramaraþon Háskólans í Reykjavík sem fram fer í dag í aðalbyggingu skólans við Nauthólsvík. Í fyrirlestrarmaraþoninu flytja 42 fræðimenn skólans örstutt erindi um allt milli himins og jarðar.
Sem dæmi um erindi má nefna:
- Líðan ungs fólks á tímum efnahagsþrenginga
- Sjávarfallatengt atferli þorsks
- Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun
- Hvað á þetta að þýða? Nýtt þýðingarkerfi fyrir íslensku
- Hvernig á að fá vélmenni til að hegða sér rétt?
- Skattar, vinna og menning á Norðurlöndum
- Þurfa lögfræðingar að kunna að reikna?
Í upphafi maraþonsins fluttu Magnús Már Halldórsson, prófessor við tölvunarfræðideild HR og Guðmundur Sigurðsson, prófessor við lagadeild HR, erindi. Magnús hlaut nýverið rannsóknarverðlaun HR 2010 og Guðmundur hlaut kennsluverðlaun ársins.
Fyrirlestramaraþonið hófst á hádegi og stendur til kl. 16:30. Hér er hægt að kynna sér dagskrá maraþonsins.

