Háskólablaðið er komið út - myndir
Háskólablaðið er nýkomið út, en það er málgagn nemenda við Háskólann í Reykjavík. Af því tilefni blés Stúdentafélagið til útgáfuhófs í Nauthólsvík í hádeginu í dag og var boðið upp á kökur, gos og tyggjó. Þá voru úrslit í ljósmyndasamkeppni blaðsins kynnt og hlaut Ingólfur Hreimsson, nemi frumgreinasviði, fyrstu verðlaun.
Blaðið kemur út í 10.000 eintökum, en hægt er að nálgast rafræna útgáfu á þessum tengli.
Blaðinu hefur verið dreift til nemenda og starfsmanna HR og 4. árs framhaldsskólanema.
Ritstjórar blaðsins eru Anna Kristín Pálsdóttir og Jóhanna Margrét Gísladóttir.
