Bættar samgöngur við HR – Nauthólsvegur opnar í dag

4.2.2010

Nauthólsvegur var opnaður með formlegum hætti í dag. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, opnaði fyrir umferð um veginn með stuttri athöfn við gatnamót Flugvallarvegar og Nauthólsvegar, gegnt Hóteli Loftleiðum.

Í kjölfarið verður Flugvallavegi lokað í u.þ.b. tvær vikur á meðan lokið verður við að tengja gatnamótin að fullu. Af þeim sökum verða allir sem eiga erindi í HR í Nauthólsvík að fara um Nauthólsveg næstu tvær vikur eða svo, en eftir það geta vegfarendur valið um tvær leiðir að skólanum og þá ætti að vera orðið afar greiðfært til Nauthólsvíkur.

Hér að neðan er yfirlitskort yfir svæðið og myndir frá opnuninni.

Formleg-opnun---yfirlitskort (pdf)

Opnun Nauthólsvegar

Opnun Nauthólsvegar 1

Opnun Nauthólsvegar 2

Opnun Nauthólsvegar 3

Opnun Nauthólsvegar 4

Opnun Nauthólsvegar 5


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica