Fræ ársins 2010

Háskólinn í Reykjavík, í samvinnu við Klak - nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins, Hugmyndahús háskólanna og Auði Capital, kynnir FRÆ ÁRSINS, samkeppni fyrir frumkvöðla með góðar hugmyndir sem þeir vilja koma í framkvæmd. 

FRÆ ÁRSINS mun verða útnefnt árlega, en markmið þess er að styðja við frumstig nýsköpunar, að gefa frumkvöðlum tækifæri til að breyta hugmynd eða frumgerð í viðskiptaáætlun og sprotafyrirtæki.

HUGMYNDIR ÚTNEFNDAR 2010

Hugmyndir Ingólfs Harðarsonar, flugvirkja og rafeindavirkja, og Jóhannesar Loftssonar, efnaverkfræðings og byggingaverkfræðings, eru Fræ ársins 2010. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík og formaður dómnefndar, tilkynnti um verðlaunin við hátíðlega athöfn í HR í dag og Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Auði Capital, afhenti verðlaunin. Sjá nánar hér.

UM SAMKEPPNINA 2010

Háskólinn í Reykjavík leitar eftir hugmyndum sem gætu orðið FRÆ ÁRSINS 2010. Aðstandendur þeirrar hugmyndar sem valin verður hlýtur 1.000.000.- kr. í styrk, vinnuaðstöðu og niðurfelld skólagjöld í Viðskiptasmiðju Klaksins.  Með þessu fá frumkvöðlar ekki aðeins fjárstuðning til að vinna að hugmyndinni, heldur einnig það umhverfi, þá þjálfun og þann stuðning sem þarf til að fullgera viðskiptaáætlun og koma á fót starfandi sprotafyrirtæki.

Allir einstaklingar með lögheimili á Íslandi geta sent inn eigin hugmyndir og/eða tilnefnt hugmyndir annarra í umboði þeirra.  Allar hugmyndir þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Hugmyndin er ný
  • Hugmyndin er framkvæmanleg
  • Ekki hefur verið skráð fyrirtæki um hugmyndina

Hugmyndir þurfa að berast fyrir 31. desember nk.,
en tilkynnt verður um FRÆ ÁRSINS 2010 í janúar nk.

Lokað hefur verið fyrir skráningar.


Öllum er velkomið að taka þátt en sérstakt tillit verður tekið til hugmynda sem tengjast tækni og fólki, svo sem nýjar tæknihugmyndir og hugmyndir að lausnum sem stuðla að betra samfélagi.

Í skráningu hugmyndar þarf eftirfarandi að koma fram:

  1. Heiti verkefnis
  2. Aðstandendur verkefnis
  3. Samstarfsaðilar
  4. Stutt lýsing á hugmyndinni
  5. Gildi hugmyndar í nýrri tækni, bótum fyrir samfélag, o.s.frv.
  6. Lýsing á næstu skrefum í þróun hugmyndar (hvað gerist næsta árið)
  7. Staðfesting á að hugmyndin sé ný og að hún sé ekki í þróun hjá skráðu fyrirtæki

Nánari upplýsingar veita Eva Þengilsdóttir, forstöðumaður markaðssviðs HR og Ari Kristinn Jónsson, forseti tölvunarfræðideildar HR.

(English version)


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica