Evrópuréttarstofnun Háskólans í Reykjavík
Evrópuréttarstofnun HR (EHR) var stofnuð í árslok 2002.
Markmið
Markmið EHR er öðru fremur að auka rannsóknir á sviði Evrópuréttar á Íslandi. Einnig að stuðla að faglegri umræðu í samfélaginu um Ísland og stöðu þess í samfélagi Evrópuþjóða
Hlutverk
Hlutverk stofnunarinnar er m.a. að auka tengsl rannsókna og kennslu á sviði Evrópuréttar. Einnig að veita nemendum í framhaldsnámi faglegan stuðning og aðstöðu til eigin rannsókna. EHR skal gangast fyrir ráðstefnum, fyrirlestrum og námskeiðum um Evrópurétt og Evrópumál og gefa út rit á sviði Evrópuréttar. Þá skal hún einnig safna og miðla heimildum á sviði Evrópuréttar. Liður í því er rekstur Evrópuupplýsinga (EU i) í Bókasafni og upplýsingaþjónustu Háskólans í Reykjavík (BUHR).

