Evrópuupplýsingar (EUi) – EU in the World
Sími: 599 6410
Netfang: eui@ru.is
Veffang: www.hr.is/eui
Afgreiðslutími: 9:00 - 16:00
Evrópuupplýsingar (EUi)
Evrópuupplýsingar (EUi) í Háskólanum í Reykjavík er hluti af upplýsingastefnu Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, “EU in the World”. Evrópuupplýsingar eru möskvi í upplýsinganeti í löndum utan sambandsins. EUi er ein sinnar tegundar á Íslandi og hefur verið starfrækt síðan 2003 undir merkjum European Documentation Centre – EDC.
Hlutverk
Hlutverk Evrópuupplýsinga er að stuðla að kennslu, hvetja rannsókna og miðla upplýsingum ESB; gera upplýsingar frá sambandinu aðgengilegar, bæði í háskólasamfélaginu og annars staðar. Evrópuupplýsingar taka þátt í umræðunni um Evrópusambandið þar sem það á við.
Upphafsreitur leitar um ESB
Þegar finna þarf upplýsingar um Evróusambandið; frumvörp Evrópuþingsins, lög og reglugerðir sambandsins, dóma Evrópudómstólsins eða hverjar aðrar upplýsingar frá ESB og stofnunum þess er rétti staðurinn til að byrja leitina hjá Evrópuupplýsingum.
Hafðu samband
Hægt er að hafa samband við Evrópuupplýsingar í Háskólanum í Reykjavík með því að koma í upplýsingamiðstöðina, senda tölvupóst eða hringja. Einnig er tilvalið að skoða vef EUi.
