Meistaranám í tölvunarfræði
Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík býður upp á tveggja ára (120 ECTS eininga) framhaldsnám til meistaragráðu (MSc) í tölvunarfræði. Námið fer fram á ensku og er hægt að velja milli áherslu á rannsóknir og áherslu á námskeið.
Í meistaranámi með áherslu á námskeið taka nemendur námskeið fyrstu þrjár annirnar og vinna svo að meistaraverkefni síðustu önnina. Meistaraverkefnið má vera hópverkefni.
Í meistaranámi með áherslu á rannsóknir taka nemendur námskeið fyrstu tvær annirnar, og einbeita sér svo að einstaklingsrannsóknarverkefnum seinni tvær annirnar, með leiðsögn rannsóknarstarfsmanns við deildina.
Meistaranám í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík hefur ýmsa kosti:
- Hlutfallslega fáir nemendur í meistarnámi tryggja góð tengsl milli nemenda og kennara
- Efni flestra námskeiða á meistarastigi eru innan sérsviða viðkomandi kennara og sterk tengsl eru milli kennslu á meistarastigi og rannsókna við deildina
- Í meistaranámi með áherslu á rannsóknir gefst nemendum tækifæri til að vinna að nýjustu rannsóknum, t.a.m. innan vébanda rannsóknarsetra deildanna en þau eru í fremstu víglínu í rannsóknum á sínum sviðum
- Í meistaranámi með áherslu á námskeið er hægt að bjóða nemendum að stunda hlutanám
- Meistaranemar geta stundað nám erlendis eina önn, við einn af fjölmörgum samstarfsskólum HR
Starfsnám í Bandaríkjunum
Meistaranemendur við tölvunarfræðideild HR hafa möguleika á að sækja um að fara til Bandaríkjanna í starfsnám við Háskólan í Maryland (Frauenhofer Center for Experimental Software Engineering og fengið þessa vinnu metna til eininga. Við Fraenhofer eru stundaðar öflugar rannsóknir í nánu samstarfi við stofnanir á borð við NASA og FDA og fá nemendur að taka þátt í þeirri vinnu.
Nemendur fá borguð laun á meðan á starfsnáminu stendur en algengast er að nemendur fari í sex mánuði í senn. Frekari upplýsingar má nálgast á hér.

