Meistaranám
ATHUGIÐ - Ekki verða teknir inn nýnemar í meistaranám í máltækni haustið 2010.
Við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík er boðið upp á tveggja ára (120 ECTS eininga) framhaldsnám til meistaragráðu í máltækni. Skipulag og umsjón námsins er á höndum Tungutækniseturs, sem er vettvangur fyrir samstarf HÍ, HR og orðfræðisviðs Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum um rannsóknir, þróun og kennslu í máltækni.
Markmið með náminu er tvíþætt: annars vegar að útskrifa nemendur með þekkingu til að stjórna verkefnum og útfæra lausnir á sviði máltækni; hins vegar að undirbúa nemendur undir doktorsnám á sviðinu.
Nám í máltækni er bæði fyrir nemendur með BA-próf í hugvísindagreinum og BS-próf í raungreinum.
Hvað er máltækni?
Máltækni (tungutækni) er rannsóknar- og þróunarsvið sem hefur það að markmiði að smíða kerfi sem geta unnið með og skilið náttúruleg tungumál og stuðlað að notkun þeirra í samskiptum manns og tölvu. Máltækni er þverfaglegt svið sem spannar t.d. tölvunarfræði, málvísindi, gervigreind, tölfræði og sálfræði.
Stutt er síðan rannsóknir og þróun í máltækni hófust á Íslandi. Með tilkomu hins svokallaða Tungutækniverkefnis, sem hófst árið 2000, tók máltækni sín fyrstu skref á landinu. Tungutækniverkefnið varð til í kjölfar skýrslu sem unnin var fyrir menntamálaráðuneytið á árunum 1998-1999. Í skýrslunni var lagt til að gert yrði átak til að efla máltækni á Íslandi þar sem Íslendingar væru að dragast verulega aftur úr öðrum þjóðum á þessu sviði. M.a. var hvatt til að menntun á sviði máltækni og málvísinda yrði efld.
Viltu vita meira?
Nánara upplýsingar um máltækni má finna á vef Tunguseturs (Icelandic Centre for Language Technology, ICLT). Fyrirspurnir um meistaranám í máltækni við Háskólan í Reykjavík má senda á Hrafn Loftsson, lektor við tölvunarfræðideild HR.
