Meistaranám í hugbúnaðarverkfræði

Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík býður , í samvinnu við Tækni- og Verkfræðideild skólans, upp á tveggja ára (120 ECTS eininga) framhaldsnám til meistaragráðu (MSc) í hugbúnaðarverkfræði.  Námið fer fram á ensku og er lögð áhersla á að dýpka og breikka þekkingu, samhliða aukinni þjálfun í beitingu þeirra aðferða sem notaðar eru í verkefnavinnu og rannsóknum.  

Meistaranám í Hugbúnaðarverkfræði við Háskólann í Reykjavík hefur ýmsa kosti:

  • Hlutfallslega fáir nemendur í meistarnámi tryggja góð tengsl milli nemenda og kennara
  • Fyrir þá sem hafa BSc í verkfræðigrein gefur meistaragráðan möguleika á verkfræðiréttindum.
  • Meistaranemar geta stundað nám erlendis eina önn, við einn af fjölmörgum samstarfsskólum HR

Starfsnám í Bandaríkjunum

Uni of MarylandMeistaranemendur við tölvunarfræðideild HR hafa möguleika á að sækja um að fara til Bandaríkjanna í starfsnám við Háskólinn í Maryland (Frauenhofer Center for Experimental Software Engineering og fengið vinnuna metna til eininga. Við Fraenhofer eru stundaðar öflugar rannsóknir í nánu samstarfi við stofnanir á borð við NASA og FDA og fá nemendur að taka þátt í þeirri vinnu.

Nemendur fá borguð laun á meðan á starfsnáminu stendur en algengast er að nemendur fari í sex mánuði i senn. Frekari upplýsingar má nálgast  hér.

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica