Kerfisfræði

Skolalif-9Tölvunarfræðideild HR leggur áherslu á að útskrifa öfluga sérfræðinga fyrir íslenskt atvinnulíf, með það að markmiði að þeir sem útskrifast séu eftirsóttir á atvinnumarkaðinum í vel launuðum og krefjandi störfum.

Við deildina er boðið upp á 120 ECTS nám til diplómaprófs í kerfisfræði (Diploma in Applied Computing) í hefðbundnum dagskóla, Háskólanámi með vinnu (HMV) og í fjarnámi.

Nemendur geta að lokinni prófgráðu í kerfisfræði ákveðið að halda áfram og lokið BSc prófi í tölvunarfræði en þá þurfa þá að bæta við sig einu námsári (60 ECTS).

Fjarnám og Háskólanám með vinnu (HMV)

Við Tölvunarfræðideild HR er boðið upp á fjarnám og háskólanám með vinnu (HMV). Háskólanám með vinnu (HMV) og fjarnám er góður valkostur fyrir einstaklinga sem vilja stunda fullgilt nám í háskóla samhliða vinnu en hafa ekki kost á að sækja dagskóla. Fjarnám hentar einnig sérstaklega vel fólki sem statt er utan höfuðborgarsvæðisins.

Inntökuskilyrði

Umsækjendur þurfa að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi. Við val á umsækjendum verður einnig horft til starfsreynslu eða frekara náms. Nemendur sem ekki hafa nægilega bóklega undirstöðu eiga þess kost að sækja um undirbúningsnám hjá FrumgreinaMennt.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica